Erlent

Grískur Evrópu­þing­maður sviptur frið­helgi og hand­tekinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Ioannis Lagos þegar dómur féll í máli Gullinnar dögunar í Grikklandi í október. Hann var ekki handtekinn þá þar sem hann naut friðhelgi sem Evrópuþingmaður. Þingið svipti hann henni í dag.
Ioannis Lagos þegar dómur féll í máli Gullinnar dögunar í Grikklandi í október. Hann var ekki handtekinn þá þar sem hann naut friðhelgi sem Evrópuþingmaður. Þingið svipti hann henni í dag. Vísir/EPA

Belgíska lögreglan handtók Ioannis Lagos, grískan Evrópuþingmann, sem var sakfelldur fyrir aðild að hægriöfgaflokknum Gullinni dögun í heimalandi sínu í dag. Lagos á yfir höfði sér þrettán ára fangelsisvist.

Grískur áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að nýnasistahreyfingin Gullin dögun væru skipulögð glæpasamtök og sakfelldi sjö leiðtoga hennar. Flokkurinn hefur verið einn sá stærsti á gríska þinginu undanfarin ár en hann náði fyrst vinsældum í kjölfar efnahagskreppunnar 2008.

Lagos var kosinn á Evrópuþingið fyrir hönd Gullinnar dögunar árið 2019 en sveik lit aðeins nokkrum vikum síðar og hefur setið á þinginu sem óháður þingmaður. Hann var ekki handtekinn í haust þar sem hann naut friðhelgi sem Evrópuþingmaður. Þeirri friðhelgi ákvað yfirgnæfandi meirihluti Evrópuþingmanna svipta hann í dag.

Í kjölfarið var Lagos handtekinn í Belgíu. Breska ríkisútvarpið BBC segir ekki ljóst hvort að hann ætli sér að berjast gegn því að vera framseldur til Grikklands. Hann var allt annað en sáttur við handtökuna á Twitter.

„Þjófarnir, guðleysingjarnir, andgrikkirnir eru að fara með mig í fangelsi,“ tísti Lagos.

Sakamálarannsókn hófst á Gullinni dögun þegar stuðningsmaður flokksins myrti Pavlos Fyssas, hiphop-tónlistarmann og andfasískan aðgerðasinna í Keratsini, vestur af Aþenu árið 2013. Lagos var þingmaður á gríska þinginu og foringi í Gullinni dögun í Píraeus, nærri þeim slóðum sem Fyssas var myrtur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×