Matur

Oreo bomban úr Blindum bakstri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Oreo kakan sem Eva Laufey bakaði í Blindum bakstri um helgina.
Oreo kakan sem Eva Laufey bakaði í Blindum bakstri um helgina. Blindur bakstur

Þeir Jógvan og Friðrik Ómar mættu í baksturskeppninni Blindur bakstur á Stöð 2 um helgina.

 Félagarnir þurftu að baka Oreo bombu og má finna uppskriftina að kökunni hér fyrir neðan. 

Í þáttunum Blindur bakstur fá keppendur hvorki að vita hvað þau eiga að baka né hvað uppskriftin inniheldur, þau þurfa algjörlega að fylgja leiðbeiningum Evu í blindni. Í lokin eru kökurnar svo skoðaðar og bornar saman við köku Evu Laufeyjar, sem svo fær að velja hvor þáttakandi stóð sig betur í að baka í blindni. Þættirnir eru sýndir á laugardagskvöldum á Stöð 2.

Oreo bomba

*3 form (20 cm)

Botnar:

  • 400 g sykur
  • 220 g hveiti
  • 120 g kakó
  • 2 tsk matarsódi
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 3 egg
  • 2,5 dl súrmjólk
  • 2,5 dl heitt soðið vatn
  • 2 dl ljós olía
  • 1 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur
  2. Sigtið þurrefnin saman í skál, sykur, hveiti, kakó, matarsódi, lyftiduft og salt.
  3. Bætið eggjum , súrmjólk, soðnu vatni, olíu og vanillu og þeytið áfram.
  4. Skiptið deiginu á milli forma og bakið við 180°C í 25 mínútur.
  5. Kælið botnanna mjög vel.

Oreo rjómaostakrem

  • 700 g flórsykur
  • 500 g smjör
  • 300 g rjómaostur
  • 150 g oreo kex
  • 1 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Þeytið saman rjómaosti, smjöri og bætið flórsykrinum smám saman.
  2. Bætið vanilludropum saman við.
  3. Myljið kexið í matvinnsluvél og bætið saman við.
  4. Sprautið kreminu á milli botnanna og þekjið kökuna með kreminu.

Súkkulaði Ganache

  1. 100 g súkkulaði
  2. 1 dl rjómi
  3. Aðferð:
  4. Hitið rjóma að suðu, saxið súkkulaði og hellið rjómanum yfir.
  5. Leyfið þessu að standa aðeins og hrærið aðeins upp í.
  6. Hellið varlega yfir kökuna.

Tengdar fréttir

Ráðherrakökurnar úr Blindum bakstri

Í þættinum Blindur bakstur um helgina kepptu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bakaðar voru bollakökur með kremi og skrauti.

„Auðunn, hvað er að gerast?“

Það getur verið ákveðið listform að gera gott kökukrem og í síðasta þætti af Blindum bakstri prófuðu þeir Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn að þeyta smjörkrem í fyrsta skipti.

Afmæliskakan í Blindum bakstri

Í baksturskeppninni Blindur bakstur um helgina hjálpaði Eva Laufey keppendum að baka afmælisköku með silkimjúku smjörkremi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×