Matur

Ráðherrakökurnar úr Blindum bakstri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eva Laufey Kjaran bakaði bollakökur með Bjarna Ben og Katrínu Jakobsdóttur í Blinum bakstri um helgina.
Eva Laufey Kjaran bakaði bollakökur með Bjarna Ben og Katrínu Jakobsdóttur í Blinum bakstri um helgina. Blindur bakstur

Í þættinum Blindur bakstur um helgina kepptu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bakaðar voru bollakökur með kremi og skrauti.

Uppskrift þáttarins má sjá hér fyrir neðan. Uppskriftin miðar við 18 til 24 kökur. 

Eva Laufey Kjaran bakaði bollakökur með Bjarna Ben og Katrínu Jakobsdóttur í Blinum bakstri um helgina.Blindur bakstur

Ráðherrakökur - vanillubollakökur með hvítu súkkulaðikremi

18-24 kökur

  • 230 g smjör, við stofuhita
  • 450 g sykur
  • 5 egg
  • 330 g hveiti
  • 4 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 3 dl rjómi
  • 1 msk vanilla (dropar eða sykur)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur)
  2. Þeytið saman sykur og smjör þar til deigið er létt og ljóst. Bætið eggjum saman við, einu í einu og þeytið vel á milli.
  3. Sigtið þurrefnin saman og bætið þeim því næst við deigið ásamt rjómanum og vanillu. Þeytið deigið mjög vel í 2 – 3 mínútur.
  4. Skiptið deiginu jafnt niður í bollakökuform og bakið við 180°C. Í 18 –22 mínútur.
Fallega skreyttar bollakökur frá Evu Laufey.Blindur bakstur

Hvítt súkkulaðikrem

  • 500 g flórsykur
  • 500 g smjör við stofuhita
  • 2 tsk vanilludropar
  • 150 g hvítt súkkulaði
  • Matarlitur að eigin vali

Aðferð:

  1. Þeytið saman smjör og flórsykur þar til blandan er létt og ljós.
  2. Bræðið súkkulaði og hellið saman við ásamt vanilludropum.
  3. Þeytið áfram í nokkrar mínútur þar til kremið er orðið silkimjúkt.
  4. Setjið kremið í sprautupoka og skreytið kökurnar að vild.

Tengdar fréttir

Afmæliskakan í Blindum bakstri

Í baksturskeppninni Blindur bakstur um helgina hjálpaði Eva Laufey keppendum að baka afmælisköku með silkimjúku smjörkremi. 

„Auðunn, hvað er að gerast?“

Það getur verið ákveðið listform að gera gott kökukrem og í síðasta þætti af Blindum bakstri prófuðu þeir Auðunn Blöndal og Hjálmar Örn að þeyta smjörkrem í fyrsta skipti.

Fengu hláturskast þegar kökurnar voru afhjúpaðar

Fyrsti þátturinn af Blindur Bakstur var sýndur um helgina á Stöð 2 en um er að ræða nýja keppni í kökubakstri. Þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran fékk þær Tobbu Marínós og Júlíönnu Söru til þess að baka „red velvet“ köku og var útkoman virkilega skemmtileg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×