Forsetaframbjóðandi lést úr Covid rétt eftir kosningar Kjartan Kjartansson skrifar 22. mars 2021 11:34 Kosningaauglýsing með mynd af Guy-Brice Parfait Kolelas. AP/Lebon Chansard Ziavoula Guy-Brice Parfait Kolelas, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar og forsetaframbjóðandi í Vestur-Kongó, lést af völdum Covid-19 aðeins nokkrum klukkustundum eftir að kjörstöðum var lokað í gær. Kolelas var einn af sex mótframbjóðendum Denis Sassou Nguesso, sitjandi forseta.
Staðfest var að Kolelas væri smitaður af kórónuveirunni þegar hann var lagður inn á sjúkrahús í höfuðborginni Brazzaville um helgina. Áður hafði hann sagt stuðningsmönnum sínum að hann væri mögulega smitaður af malaríu. Í myndbandi sem Kolelas deildi með stuðningsmönnum sínum á laugardag tók hann af sér súrefnisgrímu og sagðist hann berjast fyrir lífi sínu. Hvatti hann þá jafnframt til að kjósa. Kolelas lést í sjúkraflugvél sem var á leið til Frakklands. Hann var 61 árs. Búist var við því að Kolelas yrði í öðru sæti í kosningunum. Andlát hans ógildir ekki kosningarnar samkvæmt kosningalögum í Vestur-Kongó. Fastlega er gert ráð fyrir að Sassou Nguesso forseti sitji áfram við völdin eftir kosningarnar, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Hann hefur verið í embætti frá 1979 nær sleitulaust fyrir utan fimm ára tímabil eftir kosningaósigur árið 1992. Slökkt var á internetinu í landinu fyrir kosningarnar. Þverafríska sósíaldemókratabandalagið, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, sniðgekk kosningarnar af ótta við að þær valdi klofningi í landinu. Biskupaþing kaþólsku kirkjunnar í Vestur-Kongó lýsti jafnframt áhyggjum af gegnsæi í framkvæmd kosninganna. Í kosningunum 2016 hlaut Sassou Nguesso 60% atkvæða gegn 15% Kolelas. Að þeim loknum voru tveir forsetaframbjóðendur handteknir.
Vestur-Kongó Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Andlát Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira