Handbolti

Al­freð með Þýska­land á Ólympíu­leikana

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð Gíslason er kominn með Þýskaland á Ólympíuleikana.
Alfreð Gíslason er kominn með Þýskaland á Ólympíuleikana. Getty/Mario Hommes

Alfreð Gíslason er kominn með þýska handboltalandsliðið á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar.

Þetta varð ljóst eftir öruggan átta marka sigur Þýskalands á Alsír í undanriðli Ólympíuleikanna í dag, 34-26.

Þjóðverjar voru „bara“ þremur mörkum yfir í hálfleik en sigurinn var þannig séð aldrei í hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×