Handbolti

Sigur í fyrsta leik hjá Alexander með Flens­burg

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alexander Petersson í leiknum við Portúgal, einum af fjórum leikjum sem hann lék á HM í Egyptalandi.
Alexander Petersson í leiknum við Portúgal, einum af fjórum leikjum sem hann lék á HM í Egyptalandi. EPA-EFE/Khaled Elfiqi

Alexander Petersson lék sinn fyrsta leik með Flensburg í kvöld er liðið vann Meshkov Brest með tveggja marka mun í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, lokatölur 28-26.

Alexander gekk í raðir Flensburg nýverið er HM í handbolta í Egyptalandi lauk. Fyrsti leikur íslenska landsliðsmannsins fyrir nýja vinnuveitundur fór fram í Hvíta-Rússlandi þar sem Flensburg heimsótti Meshkov Brest í A-riðli Meistaradeildar Evrópu.

Flensburg hafði á endanum betur eftir að hafa verið einu marki undir í hálfleik, 15-14. Gestirnir stigu upp í síðari hálfleik og fór það svo að Alexander og félagar unnu leikinn með tveggja marka mun, 28-26. Hinn fertugi Alexander skoraði eitt mark í leiknum.

Flensburg er nú með 13 stig í öðru sæti riðilsins eftir átta leiki. Meshkov Brest er í þriðja sæti með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×