Lífið

Marc Anthony selur villuna á 3,5 milljarða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Marc Anthony flytur sig um set. 
Marc Anthony flytur sig um set. 

Tónlistarmaðurinn Marc Anthony hefur sett villu sína í Flórída á sölu fyrir 27 milljónir dollara eða því sem samsvarar 3,5 milljarða íslenskra.

Húsið er 1900 fermetrar að stærð og ber húsið nafnið Villa Costanera.

Húsið er eitt stærsta heimilið í suður-Flórída en þar eru tólf svefnherbergi og 14 baðherbergi.

Húsið var fullbyggt árið 2016 og fjárfesti Anthony í eigninni tveimur árum seinna en þá greiddi hann 19 milljónir dollara fyrir húsið.

Hér að neðan má sjá umfjöllun um eignina sem britist á YouTube síðunni Architecture.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×