Körfubolti

Harden, Durant og Irving töpuðu á móti Cleveland í fyrsta leiknum saman

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kyrie Irving fer hér framhjá Collin Sexton í leik Brooklyn Nets og Cleveland Cavaliers í nótt.
Kyrie Irving fer hér framhjá Collin Sexton í leik Brooklyn Nets og Cleveland Cavaliers í nótt. AP/Tony Dejak

Þeir sem biðu spenntir eftir að sjá nýjasta ofurþríeyki NBA deildarinnar í körfubolta spila saman varð að ósk sinni í nótt. Úrslitin voru þó ekki í takt við væntingarnar.

Kyrie Irving fullkomnaði ofurþríeyki Brooklyn Nets í nótt en frumraunin endaði með tapi á móti Cleveland Cavaliers í tvíframlengdum leik.  Philadelphia 76ers vann Boston Celtics og Golden State Warriors er að finna taktinn með Steph Curry í fararbroddi.

Kyrie Irving snéri aftur í lið Brooklyn Nets eftir tveggja vikna fjarveru og skoraði 37 stig. Kevin Durant og James Harden skiluðu líka flottum tölum en niðurstaðan var engu að síður 147-135 tap í tvíframlengdum leik á móti Cleveland Cavaliers.

Irving lék í 48 mínútur í leiknum og hitti úr 15 af 28 skotum sínum. Durant var með 38 stig, 12 fráköst og 8 stoðsendingar og Harden var með þrennu en hann skoraði 21 stig, tók 10 fráköst og gaf 12 stoðsendingar.

„Við munum eiga góð kvöld og við munum eiga frábær kvöld. Þetta snýst um að ná hópnum saman og hvernig við erum tilbúnir að fórna okkar og leita uppi milliveginn til að hjálpa liðinu. Hvernig það tekst á eftir að koma í ljóst en núna er einn leikur búinn að ég er spenntur fyrir framhaldinu,“ sagði Kyrie Irving eftir leik.

Collin Sexton skoraði 42 stig fyrir lið Cleveland Cavaliers þar af fimmtán þeirra í seinni framlengingunni. Cedi Osman var síðan með 25 stig.

James Harden lét sér nægja að taka bara 14 skot í leiknum en hann skoraði ekki fyrstu stigin sín fyrr en úr tveimur vítum undir lok fyrri hálfleiks.

„Við virkuðum vera svolítið týndir um tíma í leiknum en það er bara eðlilegt af því að við höfum ekki spilað saman. Menn eru að læra á hvern annan og það mun taka okkur allt tímabilið,“ sagði Steve Nash, þjálfari Brooklyn Nets.

Joel Embiid var með 42 stig og 10 fráköst og Tobias Harris skoraði 22 stig þegar Philadelphia 76ers vann 117-109 sigur á Boston Celtics. Embiid hitti úr 12 af 19 skotum utan af velli, 17 af 21 víti og þurfti bara 34 mínútur til að skora þessi 42 stig.

Ben Simmons var með 11 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar fyrir 76ers en Jaylen Brown skoraði 26 stig fyrir Boston og Marcus Smart var með 25 stig. Kemba Walker var síðan með 19 stig í öðrum leik sínum eftir að hafa misst af ellefu leikjum þar á undan. Jayson Tatum er enn frá vegna kórónuveirusmits.

Kristaps Porzingis var með 27 stig og 12 fráköst og Luka Doncic bauð upp á þrennu (13 stig, 12 fráköst og 11 stoðsendingar) þegar Dallas Mavericks vann 124-112 sigur á Indiana Pacers og endaði þriggja leikja taphringu sína.

Stephen Curry var með 26 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar þegar Golden State Warriors vann 121-99 stórsigur á San Antonio Spurs en liðið fylgdi þar eftir sigri á Lakers. Golden State hefur nú unnið sex af síðustu níu leikjum sínum. Nýliðinn James Wiseman skoraði 20 stig í nótt sem er það mesta á hans ferli til þessa.

Kawhi Leonard skoraði 32 stig og stal 6 boltum þegar Los Angeles Clippers vann 115-96 sigur á Sacramento Kings. Paul George var með 19 stig, 12 stoðsendingar og 7 fráköst.

Clint Capela átti magnað kvöld með AtlantaHawks í 123-115 sigri liðsins á Detriot Pistons. Hann var með 27 stig, 26 fráköst og 5 varin skot og sá fyrsti sem nær 25-25-5 síðan Shaquille O´Neal náði því árið 2004. Dikembe Mutombo, Patrick Ewing og Hakeem Olajuwon hafa líka náð þessu.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

  • Golden State Warriors - San Antonio Spurs 121-99
  • Los Angeles Clippers - Sacramento Kings 115-96
  • Cleveland Cavaliers - Brooklyn Nets 147-135
  • Philadelphia 76ers - Boston Celtis 117-109
  • Indiana Pacers - Dallas Mavericks 112-124
  • Atlanta Hawks - Detriot Pistons 123-115
  • Toronto Raptors - Miami Heat 102-111
  • Minnesota Timberwolves - Orlando Magic 96-97
  • Houston Rockets - Phoenis Suns 103-109
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×