Þetta er bara fyrsta skrefið Eiríkur Stefan Ásgeirsson skrifar 23. júlí 2013 07:00 Bjarki Már skorar hér mark fyrir HK gegn FH á síðasta tímabili. Ekkert verður af því að hann spili með Hafnfirðingum í vetur. fréttablaðið/valli
Bjarki Már Elísson, 23 ára gamall hornamaður, er genginn til liðs við þýska úrvalsdeildarfélagið Eisenach en hann gerði eins árs samning við félagið í gær. Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari liðsins og Hannes Jón Jónsson hefur gegnt lykilstöðu í því. „Ég ræddi við þá fyrst í janúar en það kom svo ekkert meira úr því. Ég veit samt að Alli þjálfari var að berjast fyrir því að fá mig hingað út,“ segir Bjarki Már í samtali við Fréttablaðið. Þessi öflugi vinstri hornamaður varð Íslandsmeistari með HK í fyrra. Hann fór svo frá liðinu í vor og samdi við FH með þeim fyrirvara að hann gæti farið út ef tækifærið byðist. „Þetta gerðist svo mjög hratt þegar þetta fór aftur af stað í síðustu viku. Ég var byrjaður að æfa á fullu með FH og vel gíraður fyrir tímabilið. En FH-ingar vissu vel að ég hefði áhuga á að fara út og þeir sýndu þessu mikinn skilning,“ segir Bjarki Már sem neitar því ekki að með þessu sé gamall draumur að rætast. „Ég lít á þetta sem tækifæri til að sanna mig í bestu deild í heimi. Eisenach mun þurfa að berjast fyrir lífi sínu í þessari sterku deild en fyrsta verkefni mitt verður að vinna mér inn sæti í liðinu. Svo vonast ég til að fá eins margar mínútur og mögulegt er.“ Hann vonast til að þessi samningur verði aðeins sá fyrsti af mörgum sem atvinnumaður í handbolta. „Þetta er bara fyrsta skrefið. Ég þori alveg að segja að ég stefni að því að verða með bestu leikmönnum heims í minni stöðu og ég tel að þetta sé skref í rétta átt,“ segir hann. Bjarki Már er spenntur fyrir því að vinna með Aðalsteini sem hefur náð að byggja upp öflugt lið í Eisenach. „Aðalsteinn er metnaðarfullur þjálfari og með háleitar hugmyndir. Mér líst líka vel á að spila með Hannesi Jóni sem hefur leitt mig í gegnum þessa fyrstu tvo daga hér úti. Ég tel að ég sé í góðum höndum hjá þeim.“ Bjarki á nokkra A-landsleiki að baki og var markakóngur N1-deildar karla á síðustu leiktíð, er hann skoraði 141 mark í 21 leik með HK-ingum.
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira