Fréttastofa 365 miðla hlaut þrjár tilnefningar til blaðamannaverðlauna Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. febrúar 2016 00:15 Stærstur hluti ritstjórnar 365. vísir/stefán
Tilkynnt var um tilnefningar til blaðamannaverðlaunanna 2015 nú fyrir skemmstu. Fréttastofa 365 hlaut þrjár tilnefningar, Stundin hlaut einnig þrjár, Morgunblaðið/mbl.is og RÚV hlutu tvær tilnefningar og Kjarninn og DV eina. Snærós Sindradóttir hjá Fréttablaðinu var tilnefnd í flokknum Viðtal ársins fyrir viðtal sitt við Einar Zeppelin Hildarson, ungan mann, sem á að baki afar erfiða lífsreynslu. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir á Fréttablaðinu voru tilnefndar fyrir ítarlega umfjöllun um mansal þar sem fjallað var um umfang og einkenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerðaáætlun stjórnvalda. Loks var Kolbeinn Tumi Daðason, aðstoðarritstjóri Vísis, tilnefndur fyrir uppljóstrandi umfjöllun um óánægju lögreglumanna með störf lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild sem nú sætir rannsókn héraðssaksóknara. Tilnefningarnar í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.Viðtal ársins 2015Helgi Bjarnason, Morgunblaðinu. Fyrir viðtal við Þröst Leó Gunnarsson um sjóslysið úti af Aðalvík í júlí í fyrrasumar. Þresti Leó tókst fyrir snarræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björgunartæki brugðust gersamlega og fær Helgi einstæðar lýsingar Þrastar Leó á hugarástandi þremenninganna á meðan þeir biðu björgunar.Reynir Traustason, Stundinni. Fyrir viðtal við Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðing sem sökuð var um manndráp af gáleysi. Reynir gerir lífshlaupi Ástu Kristínar góð skil og fær viðmælanda til að tala mjög opinskátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að viðhalda lífsviljanum.Snærós Sindradóttir, Fréttablaðinu. Fyrir viðtal við Einar Zeppelin Hildarson, ungan mann, sem á að baki afar erfiða lífsreynslu. Einar segir á einlægan hátt frá örlagadeginum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slasaður frá hildarleiknum. Snærós segir áhrifamikla sögu manns og dregur fram mikla þrautseigju, góða mannkosti og kærleika.Umfjöllun ársins 2015Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, fréttastofu RÚV. Fyrir umfjöllun um flóttamannavandann sem geisar í Evrópu. Með innlendu sjónarhorni á björgunarstörf áhafnar Týs á Miðjarðarhafi og viðtölum við fórnarlömb á vergangi í Ungverjalandi og Líbanon fengu landsmenn mikilsverða innsýn inn í erfiða ferð flóttamanna í leit að öryggi. Helgi Seljan, Kastljós RÚV. Fyrir umfjöllun um nauðganir, áreitni og ofbeldi gagnvart þroskahömluðum konum. Ljóstrað var upp um sinnuleysi yfirvalda sem héldu ekki hlífiskildi yfir konunum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og hunsuðu kvartanir. Af virðingu og með áhrifaríkum hætti var saga kvennanna sögð og sjónarmiði þeirra komið á framfæri.Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Fyrir ítarlega umfjöllun um mansal þar sem fjallað var um umfang og einkenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerðaráætlun stjórnvalda. Fréttaskýringaröð þeirra varpaði ljósi á vaxandi mansalsvanda hér á landi þar sem einstaklingar eru misnotaðir í kynferðislegum tilgangi, til nauðungarvinnu eða í glæpastarfsemi.Blaðamannaverðlaun ársins 2015Hörður Ægisson, DV. Fyrir skýra og greinagóða umfjöllun um slitabú föllnu bankana, vogunarsjóðina sem þá keyptu sem og útgöngusamninga þeirra við íslensk stjórnvöld. Hörður hefur upplýst stöðu mála af djúpri þekkingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóðarbúið.Ingibjörg Kjartansdóttir, Stundinni. Fyrir fjölbreytta og mikilvæga umfjöllun um kynbundið ofbeldi. Í fjölmörgum greinum gaf Ingibjörg þolendum kynbundins ofbeldis og kynferðisbrota vettvang að tjá sig um sína upplifun af brotunum, upplýsti um hve víða í samfélaginu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórnarlömb að leita réttlætis vegna þeirraSunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðið/mbl.is. Fyrir áhrifamikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flóttamenn og starfsmenn flóttamannabúða til að kynna sér aðstæður þeirra flóttamanna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.Rannsóknarblaðamennska ársins 2015Ingi Freyr Vilhjálmsson, Stundinni. Fyrir afhjúpandi umfjöllun sína um fjárhagsleg tengsl Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra og eignarhaldsfélags hans OG Capital við fyrirtækið Orka Energy. Í ljós komu verulegir hagsmunaárekstrar vegna samstarfssamnings íslenskra og kínverskra stjórnvalda í orkumálum sem Orka Energy var aðili að og ráðherrann ritaði undir.Kolbeinn Tumi Daðason 365 miðlum. Fyrir uppljóstrandi umfjöllun um óánægju lögreglumanna með störf lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild og alvarlegar ásakanir samstarfsfélaga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkniefnaheiminn. Upphaf umfjöllunarinnar var tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem fór út um þúfur.Magnús Halldórsson Kjarnanum. Fyrir ítarlega umfjöllun um sölu á hlutum Landsbankans í Borgun í lokuðu söluferli og vísbendingar um að hlutur Landsbankans hafi verið seldur á undirverði m.a. í ljósi aðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hagsmunum eigenda sem er almenningur í landinu.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira