Bændur á Bjargi ósáttir við vinnubrögð Bauhaus: Þakplöturnar hækkuðu um 150 prósent í verði 9. júlí 2012 04:00 Halldór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bauhaus, segir það koma fyrir að vörur séu vitlaust verðmerktar. Það séu mannleg mistök og þau séu einfaldlega leiðrétt. Ekki sé ætlunin að plata kúnnann með neinum hætti. fréttablaðið/gva
Bændurnir á Bjargi í Hrunamannahreppi, þau Jónína Kristinsdóttir og Karl Jónsson, ræddu við einn starfsmann Bauhaus um kaup á 3,5 metra bárujárnsplötum þegar annar starfsmaður kom aðvífandi og hækkaði verðið á plötunum um 150 prósent. Hjónunum var tjáð að um mannleg mistök hefði verið að ræða, plöturnar í hillunni hefðu verið vitlaust merktar. Fyrir höfðu plöturnar kostað 2.995 krónur en nýja verðið hljóðaði upp á 7.490 krónur. Munurinn nemur 150 prósentum. ?Þegar hann hækkaði þetta svona fyrir framan nefið á mér þá féllust mér alveg hendur,? segir Jónína. Þar sem hjónin ætluðu að kaupa 57 plötur hækkaði heildarupphæðin úr 170.715 krónum og í 426.930 krónur. ?Ég hélt að þó að þeim hefðu orðið á mannleg mistök þá ætti kúnninn ekki að líða fyrir það,? segir Jónína og Karl bætir við þau hafi haldið að það væru lög í landinu sem segðu að hilluverð gilti. Þess má þó geta að lokaverð Bauhaus er talsvert hagstæðara en hjá bæði Byko og Húsasmiðjunni þar sem svipaðar plötur kosta 8.645 krónur í stykkjaverði á báðum stöðum. Halldór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bauhaus, harmar atvikið en segir að öllum geti orðið á mannleg mistök. Stundum séu vörur vitlaust verðmerktar og þá sé það bara lagað. ?Við reynum að koma til móts við fólk að einhverju leyti í svona tilvikum. En í þessu dæmi er þetta náttúrulega svolítið mikill munur. Ef það eru einhver svona mannleg mistök reynum við að gera okkar besta til að laga hlutina að einhverju leyti,? segir Halldór en bætir við að skoða þurfi hvert tilvik fyrir sig. Samkvæmt upplýsingum frá bæði Neytendastofu og Neytendasamtökunum er ekki víst að starfsmenn Bauhaus hafi gerst brotlegir við lög. Almenna reglan er sú að verslanir skuli selja vörur og þjónustu á því verði sem verðmerkt er, líka þó um mistök sé að ræða. Þetta gildir þó ekki ef sjá má, eða það ætti að sjást, að um mistök sé að ræða. Hvort það sé tilfellið hér er álitamál enda mikill munur á verði fyrir og eftir breytingu. Úr því fæst ekki skorið nema ef send verður kvörtun eða erindi til Neytendastofu. - ktg
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira