Rannsóknarleyfi í Stóru Laxá gefið út 26. júlí 2012 06:00 Landsvirkjun kannar möguleikann á 25 til 30 megawatta virkjun í ánni. 250 ferkílómetra svæði verður rannsakað, ofan Hrunakróks og norður að Blákolli. fréttablaðið/gva
Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í efri hluta vatnasviðs Stóru Laxár. Fréttablaðið hefur greint frá umsókninni, en svæðið er utan virkjanakosta sem finna má í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Steingrímur J. Sigfússon iðnaðarráðherra vill skoða lagabreytingu varðandi slík svæði. Steingrímur hefur kallað eftir að farið verði hægt í útgáfu leyfa þar til að lokinni vinnu við rammaáætlun. Hann segir ekki heppilegt að gefa slík leyfi í því millibilsástandi sem nú ríki. „Hitt er jafn ljóst að ég ætla ekki að grípa fram fyrir hendur þar til bærra aðila sem samkvæmt lögum verða að afgreiða þau mál sem hjá þeim eru á grunni gildandi laga og réttarástands.“ Iðnaðarráðherra segir útgáfu leyfisins nú sýna mikilvægi þess að hraða vinnu við rammaáætlun eins og kostur er. „Þá veltir maður því fyrir sér í þessu tilviki með Stóru Laxá, þar sem um óflokkað svæði er að ræða, hvort ekki eigi að huga að því að gera lagabreytingar sem væru á þá leið að óflokkuð svæði skuli meðhöndlast eins og svæði í biðflokki þangað til þau hafa verið flokkuð.“ Steingrímur segir að ákjósanlegast væri að rannsóknir færu ekki fram á vegum aðila sem hafa virkjanir eða nýtingu í huga. Hefðu stjórnvöld meira fé á milli handa væri æskilegast að slíkar rannsóknir færu fram á þeirra vegum og á óháðum forsendum. Ekki hafi þó komið til tals að biðja orkufyrirtækin um að bíða með umsóknir um rannsóknarleyfi. „Ég hef alltaf verið bjartsýnn og trúaður á að orkufyrirtæki í opinberri eigu hefðu hliðsjón af yfirlýstri stefnu stjórnvalda og tækju mark á henni.“ Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir umsóknir fyrirtækisins í fullu samræmi við stefnu stjórnvalda. Kostir lendi í biðflokki vegna skorts á gögnum og þær rannsóknir sem farið sé fram á hafi ekki umhverfisáhrif. „Eingöngu er verið að safna gögnum þannig að hægt sé að leggja þau fram fyrir rammaáætlun og síðar umhverfismat, sem yrði þá næsta skrefið.“- kóp
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna reyks Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Fleiri fréttir Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Sjá meira