Segir gullgrafaraæði í ferðaþjónustu BBI skrifar 26. júlí 2012 10:49 Mynd/GVA
Mikil aukning hefur verið í útgáfu ferðaskipuleggjendaleyfa á síðasta ári að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Ferðamálaskrifstofa náði á dögunum þeim áfanga að gefa út 500. leyfið á landinu. Erna telur að enn séu brögð að því að fólk bjóði upp á ferðaþjónustu án tilskilinna leyfa en fólk sé þó smám saman að vakna til vitundar um að það þarf leyfi til að reka ferðaþjónustu. „Við gerðum heljarmikla könnun í fyrra. Þá var mjög slæmt ástand á gistimarkaðnum. Þá voru t.d. leyfislaus gistirými á höfuðborgarsvæðinu sem jöfnuðust á við Hótel Grand og Hótel Hilton samanlagt," segir hún. „Þá tók Ferðamálaskrifstofa vel á þessum málum og það eru mjög margir búnir að sækja um leyfi síðan. Ég geri ráð fyrir að þessi mikla aukning á leyfum megi að einhverju leyti rekja til þess." Hún segir að þrátt fyrir aukninguna sé algengt að fólk rjúki til og byrji að selja þjónustu án þess að hugsa út í hvað til þurfi. Það sé hálfgert „gullgrafaraæði í ferðaþjónustu". Erna segir mikilvægt að koma í veg fyrir það og fólk skilji að það þarf að fara eftir lögum í þessum efnum. „Þetta er ekki bara samkeppnismál. Þetta er líka öryggismál. Við viljum t.d. að eldvarnareftirlit skoði alla gistingu áður en hún er leigð út til ferðamanna," segir hún. Það sem af er þessu ári hafa 70 ný ferðaskipuleggjandaleyfi verið gefin út, en þau eru nauðsynleg fyrir fólk sem býður almenningi ferðatengda afþreyingu. Ferðamálastofa gaf út fyrsta leyfið árið 2006 samkvæmt nýjum lögum um skipan ferðamála. Til að reka gistiheimili þarf aftur á móti annars konar leyfi sem fæst hjá sýslumönnum.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira