Bjarnargreiði Bjarnasonar Auður Jónsdóttir rithöfundur skrifar 4. júlí 2008 15:41 Í dag er Paul Ramses meðhöndlaður sem glæpamaður fyrir það eitt að hafa sýnt einstætt hugrekki í fyrrum heimalandi sínu. Á Íslandi dvelur konan hans ásamt ungabarni þeirra. Fjölskyldunnar bíður ekkert nema óvissan, óvissa í skugga svartra framtíðarhorfa. Í versta falli bíður þeirra dauðadómur. Paul á vini og kunningja á Íslandi. Hann hefur starfað fyrir ABC-barnahjálpina. Hann er hugsjónamaður sem er fengur í fyrir íslenskt þjóðfélag. En íslenskir ráðamenn kæra sig kollótta um það. Þeir eru búnir að vísa honum út á guð og gaddinn því hann millilenti á Ítalíu á leið sinni til landsins. Svo lengi sem sitjandi dómsmálaráðherra afsakar þennan gjörning, svo lengi sem starfsmenn Útlendingastofnunnar réttlæta hann, svo lengi sem íslenskir ráðamenn sætta sig við að stjórnkerfið sé jafnsneytt mannúð og raun ber vitni, þá verður mér óglatt af tilhugsuninni einni að vera íslenskur ríkisborgari. Að horfa upp á þessar aðfarir fyllir mig vanmætti, viðjóði og sorg. Og það á við um fjölmarga aðra Íslendinga í dag. Ég efast um að valdsvið viðkomandi ráðamanna sé nógu guðlegt til að þeir hafi rétt á að valda samborgurum sínum slíkri ónotakennd. Ef sú er raunin freistar það óneitanlega að sækja um ríkisborgararétt í öðru landi en Íslandi. Bara einhverju landi þar sem mannúð þykir álíka sjálfsögð og skítsæmileg klósettaðstaða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Una 72% evrópubúa sér vel í Evrópusambandinu? Andri Sigurðsson skrifar Skoðun EES-líflínan er tekin að trosna Einar Karl Haraldsson skrifar Skoðun Útlensk skólabörn, íslenska og enska Roza Matijević Ismailovski skrifar Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Í dag er Paul Ramses meðhöndlaður sem glæpamaður fyrir það eitt að hafa sýnt einstætt hugrekki í fyrrum heimalandi sínu. Á Íslandi dvelur konan hans ásamt ungabarni þeirra. Fjölskyldunnar bíður ekkert nema óvissan, óvissa í skugga svartra framtíðarhorfa. Í versta falli bíður þeirra dauðadómur. Paul á vini og kunningja á Íslandi. Hann hefur starfað fyrir ABC-barnahjálpina. Hann er hugsjónamaður sem er fengur í fyrir íslenskt þjóðfélag. En íslenskir ráðamenn kæra sig kollótta um það. Þeir eru búnir að vísa honum út á guð og gaddinn því hann millilenti á Ítalíu á leið sinni til landsins. Svo lengi sem sitjandi dómsmálaráðherra afsakar þennan gjörning, svo lengi sem starfsmenn Útlendingastofnunnar réttlæta hann, svo lengi sem íslenskir ráðamenn sætta sig við að stjórnkerfið sé jafnsneytt mannúð og raun ber vitni, þá verður mér óglatt af tilhugsuninni einni að vera íslenskur ríkisborgari. Að horfa upp á þessar aðfarir fyllir mig vanmætti, viðjóði og sorg. Og það á við um fjölmarga aðra Íslendinga í dag. Ég efast um að valdsvið viðkomandi ráðamanna sé nógu guðlegt til að þeir hafi rétt á að valda samborgurum sínum slíkri ónotakennd. Ef sú er raunin freistar það óneitanlega að sækja um ríkisborgararétt í öðru landi en Íslandi. Bara einhverju landi þar sem mannúð þykir álíka sjálfsögð og skítsæmileg klósettaðstaða.
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun