Handbolti

Hver stimplar sig inn á HM á Spáni?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tveir sem fá tækifærið Hafnfirðingarnir og gömlu Haukamennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson fá báðir stór hlutverk á HM á Spáni.Mynd/AFP
Tveir sem fá tækifærið Hafnfirðingarnir og gömlu Haukamennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson fá báðir stór hlutverk á HM á Spáni.Mynd/AFP
Íslenska landsliðið þarf á "nýjum“ stjörnum að halda á HM í handbolta á Spáni til að fylla í stór skörð en strákarnir okkar mæta Rússum í fyrsta leik í Sevilla á morgun.

Íslenska karlalandsliðið hefur keppni á HM á Spáni á morgun en mætir með mikið breytt lið frá því á síðasta stórmóti. Fjórir byrjunarliðsmenn frá því á Ólympíuleikunum í London heltust úr lestinni í aðdraganda fyrsta stórmóts Arons Kristjánssonar og því reynir á nýjan þjálfara að finna menn til að fylla skörð þeirra.

Íslenska liðið er án þeirra Ólafs Stefánssonar, Alexanders Petersson og Arnórs Atlasonar á Spáni auk þess að varnarmaðurinn sterki, Ingimundur Ingimundarson, verður heldur ekki með.

Saman skoruðu þessir fjórir 13,2 mörk að meðaltali í leik á Ólympíuleikunum í London og mikilvægi Ingimundar, Alexanders og Arnórs var mikið í vörninni.

Fréttablaðið hefur litið til baka og skoðað hvaða leikmenn hafa stimplað sig inn í alvöru hlutverk hjá landsliðinu á undanförnum tíu stórmótum. Allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa komið inn með stærra framlag en búist var við fyrir mót og flestir tryggðu sér um leið framtíðarhlutverk í liðinu.

Hlutirnir ganga þó ekki alltaf upp hjá mönnum. Rúnar Kárason kom mjög sterkur inn á Evrópumótinu í Serbíu fyrir ári síðan og hefði fengið stórt hlutverk á HM á Spáni ef hann hefði ekki orðið fyrir því að slíta krossband á landsliðsæfingu síðasta sumar.

Ein spútnikstjarnanna, Aron Kristjánsson, sprakk líka út á sínu síðasta stórmóti en hann var mjög öflugur með íslenska landsliðinu á HM í Portúgal 2003. Aron átti meðal annars stórleik í síðasta leiknum þegar íslenska liðið tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004.

Hjá flestum hinum var þetta fyrsta skref aðeins upphafið að frekari afrekum með íslenska landsliðinu á stórmótum. Hér fyrir neðan má finna yfirlit yfir spútnikstjörnur íslenska landsliðsins á undanförnum tíu stórmótum.

Það er ljóst að íslenska landsliðið þarf framlög úr óvæntri átt ætli liðið að ná langt á HM á Spáni. Þrír leikmenn eru tilnefndir fyrir fram, hægri skyttan Ásgeir Örn Hallgrímsson, markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson og línumaðurinn Vignir Svavarsson.

Aron Rafn er bara að taka þátt í sínu öðru stórmóti en hinir tveir hafa verið í „minna" hlutverki með landsliðinu á blómatímanum síðustu ár. Það er búist við miklu af þessum þremur og hver veit nema að spútnikstjarna okkar á Spáni leynist meðal þeirra sem eru að keppa á sínu fyrstu stórmótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×