Skoðun

Má plata?

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar
„Farðu bara í vinnuna,“ segir tveggja ára dóttir mín með þjósti þegar ég geri eitthvað svo yfirgengilegt á hennar hlut að eiga skilið þyngstu refsingu. Að neita henni um ís er dæmi um framferði móður sem á það eitt skilið að hunskast í vinnuna.

Það er snúnara en ég hélt að vera góður uppalandi. Ferlega snúið! Ég ætti að vera svo miklu betri mamma en ég er. Samt er ég virkilega að reyna og sumt tekst ágætlega. Þannig eru börnin mín hjartahlýju dugleg að biðjast fyrirgefningar þegar þau breyta rangt. Þegar stóri bróðir rífur af litlu systur dótið eða litla systir bítur stóra bróður í handlegginn (fast) þá endar senan jafnan með því að þau fallast í faðma og segja „fyrrigerru“. Fyrirgefðu.

Það reynist ekki öllum auðvelt að leiðrétta mistök. Í pólitík virðist það jafnvel gamalgróið prinsipp að viðurkenna aldrei mistök og biðjast aldrei afsökunar, sama hvað upp kemur úr kafinu. Fjölmiðlar eiga ekki að vera undir sömu sök seldir. Mistök eru mannleg og eðlileg, illgirni er annars eðlis.

Á öðrum degi nýja ársins las ég um sjálfa mig illkvittinn dálk á miðopnu Fréttablaðsins. Slíkt sætir auðvitað ekki tíðindum en hitt er þó verra að þurfa enn að svara fólki úti í bæ fyrir þá lygi Fréttablaðsins að ég hefði sem þingmaður verið í „tveimur störfum samtímis“. Þetta er uppspuni. Ég tók að mér launalaust verkefni sem sneri að því að gera mannréttindamálum hærra undir höfði í Stjórnarráðinu og á Alþingi. Fréttablaðinu tókst að gera úr þessu hið tortryggilegasta mál. Ég verðskulda kannski illgjarna nýárskveðju fyrir það að hafa rangar skoðanir á Fréttablaðsmælikvarða en enginn verðskuldar að upp á hann sé logið opinberlega, ekki einu sinni kona með sjálfstæðar skoðanir.

Dóttir mín heldur áfram að segja mér að fara í vinnuna þegar ég verðskulda afplánun – og það geri ég oft. Þegar á reynir er þó heldur lítil innistæða fyrir brottvísun minni því er ég býst til ferðar sér hún eftir öllu saman: „Nei, mamma, ekki! Ekki fara í vinnuna! Fyrrigerru.“ Merkilegt hvað það reynist okkur fullorðna fólkinu oft erfitt þetta litla orð sem þó getur öllu breytt. Gleðilegt nýtt ár.




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×