Nokkur hreindýr sluppu frá veiðimönnum Jakob Bjarnar skrifar 22. september 2016 15:59
Hreindýraveiðitímabilinu er nú lokið. Ekki tókst að veiða uppí kvóta. „Endaði í raun alveg framar vonum,“ segir Jóhann G. Gunnarsson starfsmaður umhverfisstofnunar á Egilsstöðum. Jóhann hefur umsjá með hreindýraveiðum en tímabilinu lauk nú í vikunni. Til stóð að veiða 1.300 dýr en þegar tímabilið er gert upp kemur á daginn að nokkur dýr sluppu frá kúlum byssumanna. Reyndar stefndi lengi vel í það að talsvert fleiri dýr myndu sleppa því um 120 dýr átti eftir að veiða þegar fimm dagar voru eftir af tímabilinu. Það hefur því verið margt um manninn á hreindýraslóð.„Sumir mæta ekki til veiða og hafa ekki rænu á að skila leyfunum inn fyrr en það er orðið of seint,“ segir Jóhann. Og einhverjir mættu austur en náðu ekki að fella dýr sín. Eins og áður sagði var kvótinn þrettán hundruð dýr. Eftirfarandi náðist ekki: Svæði 1 – kýr 1 leyfi Svæði 6 – kýr 1 leyfi Svæði 7 – kýr 10 leyfi, tarfar 4 leyfi Svæði 8 – kýr 6 leyfi, tarfur 1 leyfi Svæði 9 – kýr 5 leyfi, tarfur 1 leyfi Veiðar á kúm, þessar fimm sem til stóð að veiða á hefðbundnum tíma var stöðvuð vegna fárra kúa á svæðinu. Og að sögn Jóhanns var erfitt að úthluta kúm á svæði 8 þar sem aðal- og varaumsóknir voru búnar. Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur mhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. Verð fyrir veiðileyfin eru að 135.000 krónur þarf að greiða fyrir tarfaleyfi og 80.000 krónur fyrir kú.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira