Fótbolti

Ísland og Rúmenía mætast 4. júní

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og strákarnir okkar taka á móti Rúmenum 4. júní.
Gylfi Þór Sigurðsson og strákarnir okkar taka á móti Rúmenum 4. júní. vísir/bára

Áætlað er að leikur Íslands og Rúmeníu í umspili um sæti á EM 2021 fari fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 4. júní.

Eins og frægt er orðið átti leikurinn að fara fram fimmtudaginn 26. mars en var frestað vegna kórónuveirufraldursins.

Nú er ljóst að umspils- og vináttulandsleikir sem áttu að fara fram 23.-31. mars verða í leikjaglugga dagana 1.-9. júní.

Á heimsíðu KSÍ kemur fram að áætlað sé að Ísland og Rúmenía mætist á Laugardalsvelli fimmtudaginn 4. júní.

Sigurvegarinn mætir annað hvort Búlgaríu eða Ungverjalandi í úrslitaleik um sæti á EM þriðjudaginn 9. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×