Einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna látinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. desember 2020 08:50 Myndir af Samuel Little teknar á lögreglustöðvum víðsvegar um Bandaríkin í gegnum árin. Vísir/Getty Samuel Little, einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna, lést í gær á sjúkrahúsi í Kaliforníu. Little játaði á sig yfir níutíu morð víðsvegar um Bandaríkin og var dæmdur í margfalt lífstíðarfangelsi.
Little var áttræður en dánarorsök hefur ekki verið gerð opinber. Þó hefur verið gefið út að hann hafi verið veikur um nokkurt skeið. Little hlaut þrjá lífstíðardóma fyrir morð á þremur konum í Los Angeles-sýslu á níunda áratug síðustu aldar og var að afplána þá þegar hann lést. Hann var ekki dæmdur fyrir morð fyrr en árið 2014. Alls játaði Little á sig morð á 93 konum víðsvegar um Bandaríkin, sem hann sagðist hafa framið milli 1970 og 2005. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur sagt játningar Little trúanlegar og metur hann „skæðasta“ raðmorðingja í sögu Bandaríkjanna. Little herjaði á konur á jaðri samfélagsins en fórnarlömb hans voru mörg vændiskonur og fíklar. Hann er í mörgum tilvikum talinn hafa kyrkt konurnar og skildi ekki eftir sig sýnilega áverka. Mörg andlátanna voru því í fyrstu ekki talin hafa borið að með saknæmum hætti.
Bandaríkin Andlát Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins