Innlent

Styrkja samanfallið Breiðablik svo hægt sé að sækja eignir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skemmdirnar á húsinu eru afar miklar.
Skemmdirnar á húsinu eru afar miklar. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitarmenn vinna nú að því hörðum höndum að styrkja Breiðablik, einbýlishús við Austurveg á Seyðisfirði, sem fór illa í aurskriðu aðfaranótt föstudags. Til stendur að styrkja það með nægilegum hætti svo hægt verði að fara inn í húsið og bjarga því sem bjarga verður.

Breiðablik er húsið sem færðist um fimmtíu metra og snerist aðfaranótt föstudags. Fyrsta húsið sem færðist úr stað áður en stóra skriðan féll síðdegis á föstudag.

Cordoula Fchrand, eigandi hússins, festi kaup á húsinu eftir að hafa kynnst manni hér á landi eftir að hún kom fyrst árið 1990. Í kjölfarið gerðu þau húsið upp, en hún sjálf er húsasmíðameistari.

Hér er björgunarsveitarmaður frá Gerpi á Neskaupsstað í stiganum að mæla og nýtur aðstoðar félaga sinna úr öðrum sveitum.Vísir/Vilhelm

Hún hefur verið búsett í Þýskalandi undanfarin ár en kom til landsins á fimmtudag eftir að hafa fengið fregnir af því að það hefði lekið inn í kjallarann hennar í vikunni.

Breiðablik er staðsett við einu bensínstöðina á Seyðisfirði sem ekki eru mikil not af þessa stundina.Vísir/Vilhelm

Í húsinu voru að sögn Cordoulu listmunir eftir föður hennar og aðrir hlutir sem hún hefur safnað í gegnum tíðina, til að mynda eldri húsgögn. Hún sagði um mikið áfall að ræða.

Þessi björgunarsveitarmaður virðist kunna vel til verka. Hópurinn telur um tíu sem kemur að þessu verkefni til að hjálpa eiganda hússins að nálgast eigur sínar.Vísir/Vilhelm

„Ég er ekki rík, ég byggði þetta með eigin höndum. Það var aldrei neinn peningur í þessu. Ég þarf að sjá hvað er eftir, kannski getum við bjargað grunninum og byggt eitthvað nýtt á honum.“

Björgunarsveitarfólk víða að af Austurlandi vinnur saman að styrkingu hússins.

Rætt var við Cordoula á Seyðisfirði á föstudaginn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×