Telur galið að Heimsferðir vilji fljúga með sig á hááhættusvæði Jakob Bjarnar skrifar 16. mars 2020 11:08 Dauflegt á Tene þessa dagana. Breki segir að réttur Jónínu sé ríkur sé litið til laga. Forsendur eru aðrar og hún ætti því að eiga endurgreiðslurétt. En þó ber til þess að líta að nú eru uppi eindæma aðstæður sem aldrei hefur reynt á áður.
Jónína Símonardóttir sjúkraliði og fótameinafræðingur á pantaða ferð með Heimsferðum til Tenerife á morgun. Hún hefur verið í sambandi við ferðaskrifstofuna og gekk út frá því að ferðinni yrði aflýst af hálfu ferðaskrifstofunnar. En, því er ekki að heilsa. „Þetta er skilgreint sem hááættusvæði. Þar er allt lokað og fólk sektað ef það fer úr húsi,“ segir Jónína undrandi í samtali við fréttastofu. Henni sýnist augljóst að allar forsendur séu brostnar. Til standi að fljúga henni út þann 17. þessa mánaðar í sóttkví og til baka 2. apríl, og þá taki við sóttkví í tvær vikur á Íslandi. „Þetta er bara djók.“ Allar flugferðir á áætlun Vísi tókst ekki að ná sambandi við neinn hjá Heimsferðum en á heimasíðu ferðaskrifstofunnar segir, og er það í samræmi við frásögn Jónínu: Jónína segir að Heimsferðir vilji að hún sjálf slái fréttina af og þá þarf hún að greiða hana þó hún hafi aldrei verið farin. „Athugið! Farþegar Heimsferða sem eiga pantað flug heim frá Gran Canaria og Tenerife á næstu dögum. Nú þegar yfirvöld á Íslandi hafa sent tilmæli til Íslendinga sem staddir eru erlendis að íhuga að flýta heimför þá viljum við upplýsa farþega að öll flug okkar næstu daga eru á ætlun, eins og staðan er núna. Við erum að skoða næstu skref og munum upplýsa alla farþega sem bókaðir eru á okkar vegum um framhaldið.“ Tapar ferðinni ef hún ákveður sjálf að fara hvergi Jónína segist hafa fengið ferðina ódýrt, eða fyrir 244 þúsund krónur fyrir tvo. Hún segir stöðuna sérkennilega. Heimsferðir vilji halda áætlun og segi við sig að hún verði sjálf að ákveða hvort hún vill fara eða ekki. „Ég gerði ekkert ráð fyrir því að ég væri að fara og ætla ekki að fara. En þau hjá Heimsferðum segja að það sé á mínu valdi hvort ég fer eða ekki. Og þá tapa ég ferðinni. Þarf að borga hana,“ segir Jónína. Og allar tilraunir hennar til að fá henni breytt hafi verið tómt mál um að tala af hálfu Heimsferða. Neytendasamtökin telja rétt Jónínu ríkan Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum telur Heimsferðir þarna á vafasömu róli en samtökunum hefur borist fjöldi fyrirspurna um einmitt atriði sem þessi. Breki segir lögin skýr. Um réttindi ferðalanga sem keyptu pakkaferðir kemur fram í 15. grein laga um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, orðrétt: Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. telur einsýnt að um forsendubrest en samtökunum berst nú fjöldi fyrirspurna um einmitt hliðstæð tilvik og hér eru rakin.Vísir/Vilhelm „Skipuleggjandi eða smásali á ekki rétt á greiðslu þóknunar af hendi ferðamanns ef afpöntun er vegna óvenjulegra og óviðráðanlegra aðstæðna sem hafa veruleg áhrif á framkvæmd pakkaferðar eða flutning farþega til ákvörðunarstaðar.“ Breki segir þetta ekkert fara á milli mála. „Einsýnt, þarna verður ekki hægt að fullnusta ferðina eða framkvæma eins og hún var keypt. Ef fólk þarf að fara í tveggja vikna sóttkví þegar það kemur heim aftur þá er það forsendubrestur. Við höfum skilgreint það hér á Neytendasamtökunum að á þeim svæðum sem skilgreind eru sem svo að mikil áhætta sé að fara til eigi þetta við.“ Breki segir að þó sé vert að hafa allar varnagla upp. „Þetta eru eindæma aðstæður sem aldrei hefur reynt á áður.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Neytendur Íslendingar erlendis Fréttir af flugi Tengdar fréttir Meirihluti kórónuveirusmitaðra nú utan Kína Þau tímamót urðu í nótt að meirihluti þeirra sem greinst hafa með kórónuveirusmit í heiminum eru nú utan Kína. 16. mars 2020 07:00 Skilgreina Spán, Þýskaland og Frakkland nú sem hááhættusvæði Sóttvarnalæknir hefur nú hækkað áhættumat fyrir Þýskaland, Frakkland og Spán, þar á meðal Kanaríeyjar, í ljósi útbreiðslu kórónuveirunnar í þeim löndum. Allir sem koma frá þeim svæðum er nú gert að fara í tveggja vikna sóttkví við heimkomu. 14. mars 2020 16:54 Þjóðir um allan heim herða aðgerðir sínar Neyðarástandi verður lýst yfir á Spáni eftir ríkisstjórnarfund á morgun. Götur helstu borga landsins voru auðar í dag en óttast er að tala smitaðra fari í tíu þúsund í komandi viku. 14. mars 2020 23:14 Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
Meirihluti kórónuveirusmitaðra nú utan Kína Þau tímamót urðu í nótt að meirihluti þeirra sem greinst hafa með kórónuveirusmit í heiminum eru nú utan Kína. 16. mars 2020 07:00
Skilgreina Spán, Þýskaland og Frakkland nú sem hááhættusvæði Sóttvarnalæknir hefur nú hækkað áhættumat fyrir Þýskaland, Frakkland og Spán, þar á meðal Kanaríeyjar, í ljósi útbreiðslu kórónuveirunnar í þeim löndum. Allir sem koma frá þeim svæðum er nú gert að fara í tveggja vikna sóttkví við heimkomu. 14. mars 2020 16:54
Þjóðir um allan heim herða aðgerðir sínar Neyðarástandi verður lýst yfir á Spáni eftir ríkisstjórnarfund á morgun. Götur helstu borga landsins voru auðar í dag en óttast er að tala smitaðra fari í tíu þúsund í komandi viku. 14. mars 2020 23:14