Þetta er „í fylgd með fullorðnum bók“ Bjartur/Veröld 23. nóvember 2020 12:08 „Ég er búinn að vinna úr mínum málum. Ég er á góðum stað í dag og hef verið það í einhvern tíma. Ég geng alveg sáttur frá borði.“ Árni Páll Árnason segir frá skrykkjóttu lífi sínu í bókinni Herra Hnetusmjör - hingað til Bók vikunnar á Vísi er Herra Hnetusmjör - hingað til. Herra Hnetusmjör – Árni Páll Árnason – hefur verið eins og hvirfilbylur í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Lögum hans er streymt í milljónum skipta á tónlistarveitum og framganga hans á tónleikum hefur vakið mikla athygli og aðdáun. Nú er komin út ævisaga þessa 24 ára gamla tónlistarmanns, Herra Hnetusmjör - hingað til. Í bókinni fer Sóli Hólm yfir skrykkjótta lífsgöngu Árna Páls sem spannar allt frá hamingjuríkri æsku í Hveragerði til freistinga dópsins og skuggahliða Reykjavíkur. Sagan segir frá hvernig Árni Páll komst á toppinn í íslensku rappsenunni meðan hann féll til botns í neyslu og óreglu. Tannlaus og með stæla í Hveragerði þar sem Árni Páll Árnason – Herra Hnetusmjör – átti sæluríka daga. Á leikskólanum Óslandi má segja að hann hafi tekið sitt fyrsa gigg, söng Ryksugan á fullu með Róberti Smára félaga sínum. En sagan endar vel. Í dag hefur Árni Páll snúið baki við skuggahliðum óreglunnar og hafið nýtt líf með kærustu sinni Söru Linneth L. Castañeda og 9 mánaða syni þeirra. Hann segir allt látið flakka í bókinni þó hún hafi byrjað sem brandari. „Þetta er svona Justin Bieber moove, byrjaði sem grín en svo náði galsinn tökum á okkur og allt í einu vorum við komnir með bók. Þetta er ævisaga en ég er 24 ára og það stuðar einhverja, sem er bara gaman,“ segir Árni Páll. „Birnir ég og Joe eftir Giggið á Húrra á Airwaves 2016, daginn áður en ég spilaði fyrir kók.“ Árni Páll lýsir í bók sinni meðal annars baráttunni við dópið og hvernig hann náði sér aftur á beinu brautina. „Það er farið í allt þarna. Bókin byrjar eins dagbók Berts en fer svo smám saman út í Svartur á leik. Þetta er alveg „Í fylgd eð fullorðnum“ bók sko, hún er ekki fyrir börn en fyrir unglinga og upp úr. En þetta er bara raunveruleikinn og þarna er ekkert sem áttrætt fólk hefur ekki séð,“ segir hann, spurður hvort bókin sé við hæfi í jólapakkann til ömmu og afa. „Ég var reyndar mjög kvíðinn að tala við mömmu um bókina. Svo spurði Sóli hvort ég væri búinn að tal við ömmu! Ha, nei! Pabbi verður bara að tala við hana,“ segir hann hlæjandi. Verða jólaboðin þá ekkert vandræðaleg þegar fjölskyldan verður öll búin að lesa sögurnar? „Þau þekkja söguna mína en, ég var reyndar ekki búinn að pæla í því , ég verð kannski að hringja mig inn veikan,“ segir hann. „Ég samt alveg sjúklega ánægður með þetta. Fyrst átti þetta að vera eitthvert „money grab og fara bara í ódýrustu leiðina til að fá sem mestan pening en svo áttuðum við okkur á að þetta var ekki verkefni til að fá peninga fyrir, heldur til að skilja eitthvað epískt eftir. Við fórum því af fullum krafti í þetta með Bjarti Veröld,“ segir Árni Páll. Það hefi ekki verið auðvelt að skrifa bókina. Með skammbyssu í skúrnum hjá Birgi Hákoni vini sínum. „Ef Biggi hefði verið fótboltamaður má líkja væntingum undirheimanna til Bigga sem dópsala við það þegar Eiður Smári var að stíga sín fyrstu skref í fullorðinsfótbolta.“ „Það var klárlega erfitt að vinna þetta. Sóli tók viðtöl við mömmu og við systur mína og það var farið yfir gömul myndaalbúm. Það tekur á að skoða árið 2016, sem var síðasta árið mitt í rokkinu. Ég á ennþá gamla símann minn sem ég notaði þá, mölbrotinn ofan í skúffu og fór í gegnum hann til að finna myndir í bókina. Það var drulluerfitt að lesa gömul sms og þar inni eru grófar myndir. Margar þeirra fóru í bókina. Mér fannst mikilvægt að setja visual á sögurnar,“ segir hann. „Ég er búinn að vinna úr mínum málum. Ég er á góðum stað í dag og hef verið það í einhvern tíma. Ég geng alveg sáttur frá borði,“ segir hann. Það sé ekki á döfinni að gefa út aðra æfisögu. „Klárlega ekki. Ég vona að lífið verði ekki eins spennuhlaðið fyrir aðra bók. Nú erum við bara að spá í hluti eins og stækka við okkur og nám og svona hversdagslegri hluti. Ég vona að restin af lífi mínu verði þannig að enginn nenni að lesa um það.“ Bjartur Veröld bregður á leik með Vísi og gefur nokkur eintök af bókinni Herra Hnetusmjör - hingað til. Taktu þátt inni á Lífið á Vísi á facebook. Menning Tónlist Mest lesið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Lífið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira
Bjartur Veröld bregður á leik með Vísi og gefur nokkur eintök af bókinni Herra Hnetusmjör - hingað til. Taktu þátt inni á Lífið á Vísi á facebook.
Menning Tónlist Mest lesið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Lífið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira