83 greindust innanlands Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2020 11:03 Einn er í öndunarvél á gjörgæslu að sögn Más Kristjánssonar, yfirlæknis á smitsjúkdómadeild Landspítalans. Vísir/Vilhelm
83 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 49 þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en 34 ekki. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru 22 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 23 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, segir í samtali við Vísi að einn sé í öndunarvél. Tveir voru í öndunarvél í gær. Þrjú smit greindust á landamærum og er niðurstaða mótefnamælingar beðið í öllum tilvikum. 1.071 manns eru nú í einangrun, samanborið við 1.022 í gær. Þá eru 3.436 í sóttkví í dag, samanborið við 4.296 í gær. Af þeim 83 sem greindust innanlands í gær greindust 64 eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni og nítján við sóttkvíar- og handahófsskimun. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 253,9 en var 240,3 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 10,1, en var 10,6 í gær. Nú hafa 3.668 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir. Alls voru tekin 1.372 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 561 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 1.351 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og þá voru 406 sýni tekið í annarri skimun hjá ÍE.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Sjá meira