Erlent

Varaforsetaefni takast á í kappræðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Mike Pence og Kamala Harris
Mike Pence og Kamala Harris Vísir/AP

Uppfært klukkan 06:01: Kappræðunum er lokið en horfa má á í þær í spilaranum neðst í fréttinni.

Þau Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og Kamala Harris, öldungadeildarþingmaður og varaforsetaframbjóðandi, munu mætast í kappræðum í nótt. 

Við hefðbundnar kringumstæður fá kappræður varaforsetaefna temmilega litla athygli en við búum ekki við hefðbundnar kringumstæður. Þó þykir líklegt að kappræðurnar verði hefðbundnari en kappræður Donald Trumps og Joe Bidens.

Fylgjast má með kappræðunum í spilaranum neðst í fréttinni en þær eiga að hefjast klukkan eitt í nótt.

Kappræðunum hefur verið lýst sem þeim mikilvægustu í sögu Bandaríkjanna og AP fréttaveitan segir elstu menn ekki muna eftir meiri eftirvæntingu fyrir kappræður varaforseta.

AP nefnir einni þann raunhæfa möguleika að í báðum tilfellum gætu þau Pence og Harris þurft að taka við forsetaembættinu með stuttum fyrirvara og því sé það mikilvægt fyrir kjósendur að mynda sér skoðun á þeim tveimur.

Donald Trump er 74 ára gamall og smitaður af Covid-19. Joe Biden, sem er 77 ára, yrði elsti forseti í sögu Bandaríkjanna við embættistöku, ef hann yrði kosinn.

Kórónuveiran verður fyrirferðarmikil

Þó farið verði yfir mörg málefni þykir ljóst að heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar verði mikið ræddur. Mike Pence mun líklegast verja miklum tíma í vörn í þeim málaflokki og þá sérstaklega með tilliti til þess að Trump setti hann yfir viðbrögð ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins.

Rúmlega 210 þúsund manns hafa dáið vegna Covid-19 í Bandaríkjunum. Meira en nokkursstaðar annarsstaðar.

Sjá einnig: Biden vex ásmegin í könnunum

Til marks um þau áhrif sem faraldurinn mun hafa á kappræðurnar má benda á að Pence og Harris verða á bakvið gegnsæjar skjólveggi en Pence hefur verið í samskiptum við starfsmenn Hvíta hússins sem hafa smitast af Covid-19 á undanförnum dögum.

Þá verða allir í salnum skyldugir til að bera grímur. Annars verður þeim vikið út.

Þessi maður var að þrífa skjólveggina sem aðskilja frambjóðendurna í kappræðunum í dag.AP/Julio Cortrez

Frá því Trump sneri aftur í Hvíta húsið á dögunum, hefur hann reynt að breyta umræðunni um Covid-19 og haldið því fram að faraldurinn sé ekki það alvarlegur. Bandaríkjamenn eigi ekki að láta hann hafa áhrif á líf þeirra.

Sjá einnig: Utangarðsmaðurinn sem varð móðins

Í umfjöllun New York Times segir að vangaveltur séu uppi um hvort Pence muni taka undir það og segja eitthvað á þá leið. Kannanir sýni að Bandaríkjamenn séu alls ekki sammála heilt yfir.

Pence mun líklegast einnig þurfa að svara fyrir hegðun forsetans í kjölfar þess að hann greindist smitaður. Að hann hafi farið af sjúkrahúsinu, gert lítið úr hættunni og grafið undan grímunotkun, svo eitthvað sé nefnt.

Sjá einnig: Hver er þessi Kamala?

Harris mun þá þurfa að svara fyrir stefnumál hennar og Bidens, sem Pence mun mála sem mjög frjálslyndar.

Fylgjast má með kappræðunum hér að neðan og eiga þær að hefjast klukkan eitt í nótt.


Tengdar fréttir

Kamala gerir gæfumuninn, segir Magnús sem spáði rétt 2016

Magnús Ólafsson sá fyrir sigur Trump á sínum tíma. Hann rýnir nú í stöðuna fyrir Vísi og greinir. Lesturinn gæti reynst huggun þeim sem hafa áhyggjur af öðrum fjórum árum með Trump í stóli forseta Bandaríkjanna.

Vissu af smitinu en fóru samt að hitta fólk

Hvíta húsið vissi af því að einn nánasti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseti væri smitaður af kórónuveirunni á miðvikudagskvöld en forsetinn og aðrir sem voru útsettir fyrir smiti héldu samt áfram að vera á meðal fólks. Trump og eiginkona hans greindust bæði smituð í gærkvöldi.

Bandaríkin: Fyrstu kappræðurnar vöktu mikla athygli

Fyrstu kappræður forsetakosninga Bandaríkjanna fóru fram aðfaranótt miðvikudagsins. Þar mættust þeir Donald Trump, forseti, og Joe Biden, frambjóðandi Demókrataflokksins, á sviði í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að úrkoman hafi verið sérstök.

„Snjóflóð“ lyga frá forsetanum

Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér.

Framíköll, óreiða og deilur einkenndu kappræðurnar

Fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í Cleveland í nótt. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum og deilum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×