„Annar okkar mun ekki lifa af“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. september 2020 08:39 Frá vettvangi í Mehamn laugardaginn 27. apríl. Réttarhöld yfir Gunnari Jóhanni hófust í dag en þeim hefur verið frestað í tvígang. TV2/Christoffer Robin Jensen
Lögreglan í Finnmörk var hvorki talin hafa gert alvarleg mistök né hafa brotið gegn skyldu sinni til þess að afstýra refsiverðu broti í aðdraganda þess að Gunnar Jóhann Gunnarsson skaut hálfbróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson, til bana í smábænum Mehamn í Noregi í apríl í fyrra. Þetta var niðurstaða sérstakrar eftirlitsstofnunar um störf lögreglunnar í Noregi sem og ríkissaksóknara. Lögfræðingurinn Edel Olsen tilkynnti lögregluna í Finnmörk til eftirlitsstofnunarinnar fyrir hönd aðstandenda Gísla Þórs. Fjallað er um þennan anga morðsins í Mehamn í frétt á vef NRK. Réttarhöld yfir Gunnari Jóhanni hefjast í dag. Hann neitar sök og kveðst hafa skotið bróður sinn fyrir slysni. Í frétt NRK er brotaferill Gunnars Jóhanns hér á Íslandi rifjaður upp en líkt og Vísir fjallaði um á sínum tíma hefur Gunnar hlotið dóma hér á landi fyrir nauðgun og líkamsárás. Þá kemur fram að í febrúar, tveimur mánuðum áður en Gunnar Jóhann skaut bróður sinn til bana, hafði lögregla til rannsóknar hótanir Gunnars í garð barnsmóður sinnar og Gísla Þórs. Í apríl frétti Gunnar síðan að barnsmóðir hans og Gísli Þór hefðu tekið saman. Gunnar Jóhann við veiðar.Facebook Hafði samband við barnsmóðurina og hótaði að drepa bróður sinn Gunnar Jóhann er sagður hafa brugðist hart við þessu. Hann hafði samband við barnsmóður sína og sagðist vilja drepa bróður sinn. Vegna þessara hótana var Gunnar úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart Gísla og barnsmóður sinni þann 17. apríl. Tíu dögum síðar skaut hann bróður sinn til bana. Olsen vildi ekki tjá sig við NRK um þann hluta málsins sem snýr að lögreglunni í Finnmörk og hvort koma hefði mátt í veg fyrir að Gísli Þór léti lífið. Hún vísaði í gögn eftirlitsstofnunarinnar og ríkissaksóknara sem NRK hefur undir höndum. Þegar fjallað var um sakaferil Gunnars í norskum fjölmiðlum vildi lögreglan í Finnmörk ekki svara því hvort henni hefði verið kunnugt um brot hans hér á landi. Olsen vísar hins vegar í skjöl sem hún telur sýna að lögreglunni hafi verið kunnugt um það að minnsta kosti í febrúar að Gunnar Jóhann væri ofbeldisfullur. Þannig hafi bæði barnsmóðir Gunnars og Gísli Þór sagt frá því skýrslutöku hjá lögreglu strax í febrúar að Gunnar Jóhann hefði hlotið dóma heima á Íslandi. Þá sagði barnsmóðir hans frá því að hann hefði hótað bróður sínum lífláti. Gísli Þór Þórarinsson bjó í Mehamn líkt og hálfbróðirinn, Gunnar Jóhann. Segir lögregluna hafa vitað um „fjölskyldudrama“ Gísli Þór var spurður að því hjá lögreglu hvað hann teldi að Gunnar Jóhann myndi gera. Hann svaraði því til að hann vissi það ekki en að „annar okkar mun ekki lifa af.“ „Lögreglan vissi að ákærði hafði haft uppi líflátshótanir í garð hins látna fyrir morðið. Lögreglan vissi að þetta var „fjölskyldudrama“ þar sem afbrýðisemi, svik, ölvun, andleg veikindi og fyrri ofbeldisbrot komu við sögu,“ skrifar Olsen í skýrslu sinni um málið. Þrátt fyrir líflátshótanirnar kemst eftirlitsstofnunin um störf lögreglu að eftirfarandi niðurstöðu: „Samskiptum hálfbræðranna er lýst sem ágætum fram til 16. apríl 2019. Í samskiptum þeirra á milli ber hvorki á andlegu né líkamlegu ofbeldi og þá hafa ekki verið hafðar uppi hótanir…“ Gísli Þór segir í skýrslutöku hjá lögreglu í apríl að hann hafi ekki lengur svo miklar áhyggjur af sjálfum sér. Hann hafi meiri áhyggjur af kærustunni sinni, barnsmóður Gunnars, og börnunum að því er fram kemur í skýrslu eftirlitsstofnunarinnar. Þá er einnig lögð áhersla á það í skýrslunni að lögreglunni í Finnmörk barst engin tilkynning frá heilbrigðisyfirvöldum. Gunnar Jóhann sagði við heimilislækninn sinn þann 16. apríl hann væri með sjálfsvígshugsanir. Hann var síðan lagður inn á geðdeild þar sem hann dvaldi í níu daga. Mehamn er rólegur, lítill bær á norðurströnd Noregs. Nordicphotos/AFP Fengu enga tilkynningu frá sjúkrahúsinu varðandi Gunnar Jóhann Heilbrigðisstofnunum ber skylda til þess að láta lögreglu vita ef sjúklingur útskrifast sem talin er geta verið alvarleg ógn við aðra. Engin slík tilkynning barst frá sjúkrahúsinu í tilfelli Gunnars. Ástand hans var ekki talið það alvarlegt. Olsen gefur lítið fyrir þessi rök og telur að lögreglan hefði sjálf átt að haf samband við spítalann. Þá telur hún einnig að lögreglan hefði getað lagt hald á morðvopnið ef hún hefði hlustað á kunningja Gunnars sem nefndi ákveðna staði þar sem hægt hefði verið að geyma haglabyssuna. Það er mat ríkissaksóknara, líkt og eftirlitsstofnunarinnar, að lögreglan hafi ekki hagað sér með óábyrgum hætti. Þannig hafi lögreglumaður ráðfært sig við lögfræðing hjá lögreglunni þegar það fréttist að Gunnar Jóhann hefði brotið gegn nálgunarbanninu og væri á leið heim til Mehamn. Taldi lögfræðingurinn ekki vera grundvöll til þess að handtaka Gunnar. „Með vísan til þessa samtals er ekkert sem bendir til þess að viðkomandi lögreglumaður hafi fengið viðvörun um það sem síðar gerðist,“ skrifar ríkissaksóknari. Réttarhöldin hófust í dag eins og áður segir. Að því er fram kemur í frétt mbl.is úr dómsal neitaði Gunnar Jóhann fyrir dómi að hafa skotið bróður sinn til bana af ásetningi. Hann viðurkenndi hins vegar morð af gáleysi.
Manndráp í Mehamn Noregur Tengdar fréttir Gunnar Jóhann ákærður fyrir manndráp af ásetningi Verjandi Gunnars Jóhann segir við mbl.is að honum komi á óvart að ákært sé fyrir ásetning. Rétta á yfir Gunnari Jóhanni í mars. 21. janúar 2020 22:37 Mest lesið Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér Innlent Kveður Glerártorg eftir sautján ár Innlent Tóku á móti tveimur börnum á innan við klukkustund Innlent Sérsveit handtók vopnaðan mann Innlent Elsti hestur landsins er 36 vetra með tennur og hófa í fínu standi Innlent Steinn reistur við með eins konar blöðrum Innlent Gunnar Smári kosinn úr stjórn: Úrsagnir og uppnám á aðalfundi Sósíalistaflokksins Innlent „Hafa ekki lyft litla fingri í máli Oscars“ Innlent Dúxinn fjarri góðu gamni Innlent Vísar ásökunum um smölun aftur til sendanda Innlent Fleiri fréttir Sérsveit handtók vopnaðan mann Tóku á móti tveimur börnum á innan við klukkustund Steinn reistur við með eins konar blöðrum Elsti hestur landsins er 36 vetra með tennur og hófa í fínu standi Vannærð börn svelti eða verði læknanlegum sjúkdómum að bráð „Þú hakkar ekki á tóman maga“ Kveður Glerártorg eftir sautján ár Þingmaður úðaði eyrnameðali fyrir hunda í kokið á sér „Hafa ekki lyft litla fingri í máli Oscars“ Dúxinn fjarri góðu gamni Brottvísun Oscars, skortur á kvenhökkurum og hundgamall hestur Vísar ásökunum um smölun aftur til sendanda Skjálftinn reyndist 5,1 og fannst frá Skaganum að Hellu Gunnar Smári kosinn úr stjórn: Úrsagnir og uppnám á aðalfundi Sósíalistaflokksins Skiptar skoðanir á „forljótum“ varðturnum gegn vasaþjófnaði Stór skjálfti fannst vel á suður- og vesturlandi Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Beiðni Oscars hafnað: „Það bíður hans engin birta, það er enginn þarna“ Nýr meirihluti komi ekki til greina Umsókn Oscars um landvistarleyfi hafnað og nýr meirihluti útilokaður Þrjár erlendar stúlkur með hæstu einkunn í FÁ Brennandi einbýlishús reyndist eyðibýli Tekist á um breytta ásýnd Suðurlandsbrautar með tilkomu Borgarlínunnar Ökumenn sektaðir vegna notkunar nagladekkja Fólk í fjarvinnu finni fyrir minni streitu Fólk látið vinna of hratt og fái ekki greitt fyrir alla vinnuna Sást ekki til sólar fyrir mýi Áfengi og íþróttaviðburðir geti átt samleið sé farið að lögum Bensínbrúsar inni í íbúðinni Fjögurra ára gömul hola heyrir brátt sögunni til Sjá meira
Gunnar Jóhann ákærður fyrir manndráp af ásetningi Verjandi Gunnars Jóhann segir við mbl.is að honum komi á óvart að ákært sé fyrir ásetning. Rétta á yfir Gunnari Jóhanni í mars. 21. janúar 2020 22:37