Ísak Bergmann og Jón Dagur skoruðu báðir | Sjáðu mörkin Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. september 2020 19:00 Ísak Bergmann er heldur betur að stimpla sig inn í Svíþjóð. Vísir/Getty
Þeir Ísak Bergmann Jóhannesson og Jón Dagur Þorsteinsson skoruðu báðir er lið þeirra - Norrköping og AGF - unnu góða sigra í sænsku og dönsku úrvalsdeildinni í dag. Ísak Bergmann kom Norrköping yfir eftir tæplega hálftíma leik er liðið mætti Kalmar á útivelli í dag. Tíu mínútum síðar var staðan orðin 2-0 og þannig var hún bæði þegar flautað var til hálfleiks og leiksloka. Norrköping er sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 32 stig eftir að hafa spilað 20 leiki. Häcken og Elfsborg eru þar fyrir ofan með 33 stig en bæði lið eiga leik til góða á Norrköping. Malmö er sem fyrr á toppi deildarinnar með 40 stig. Magiskt förarbete av Levi när Ísak Bergmann Jóhannesson ger Norrköping ledningen pic.twitter.com/cYq7FR0Fez— Dplay Sport (@Dplay_Sport) September 14, 2020 Jón Dagur skoraði þriðja og síðasta mark AGF í öruggum 3-0 sigri á Kjartani Henry Finnbogasyni og félögum í Vejle í 1 umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. AGF komst í 2-0 strax í upphafi leiks og Jón Dagur kom liðinu í 3-0 á 58. mínútu. Sem betur fer því Vejle átti eftir að minnka muninn. Booooom Jón Dagur Þorsteinsson (@jondagur) pic.twitter.com/y7vsz0ZUmy— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) September 14, 2020 Kjartan Henry kom inn af varamannabekk Vejle á 69. mínútu og umturnaði sóknarleik Vejle í kjölfarið. Liðið minnkaði muninn í 3-1 aðeins tveimur mínútum eftir að hann kom inn á og á 84. mínútu var staðan orðin 3-2. Nær komst Vejle ekki og bættu AGF við fjórða marki sínu í uppbótartíma, lokatölur því 4-2 AGF í vil í fyrsta leik tímabilsins.
Fótbolti Danski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira