Hvað varð um norræna traustið? Hópur formanna norrænu félaganna á Norðurlöndunum skrifar 1. september 2020 11:00 Kórónaveirufaraldurinn hefur virkað sem vekjaraklukka á norræna samvinnu. Á óvissutímum er það venja að hver og einn lítur sjálfum sér næst og hefur veikleiki norrænnar samvinnu kristallast í skorti á samræmdum aðgerðum stjórnvalda. En þetta er ekki í fyrsta skipti því það var einnig raunin í flóttamannakrísunni haustið 2015. Traust milli manna og traust á stjórnvöldum hefur verið eitt af grunngildum norrænns samfélags og verið einkennandi fyrir löndin. Samkvæmt skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar frá árinu 2017 er traust gull Norðurlanda. Traust norrænna íbúa á stjórnvöld síns lands eru svo sannarlega fyrir hendi og hefur berlega komið í ljós frá því Covid – 19 faraldurinn braust út en um leið hefur skortur á trausti milli íbúa og stjórnvalda Norðurlandanna orðið áberandi. Ummæli stjórnmálamanna og annarra sem koma að opinberum ákvörðunum, svo ekki sé minnst á skoðanaskipti á samfélagsmiðlum er dapurleg lesning og fjarvera norrænnar samvinnu áberandi. Hvernig byggjum við upp traust og samheldni aftur Forsætisráðherrar Norðurlanda kynntu haustið 2019 nýja framtíðarsýn sem þeir ásamt Norrænu ráðherranefndinni unnu og gildir til ársins 2030. Framtíðarsýnin um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og best samþætta svæði heims var vissulega kynnt fyrir kórónuveirufaraldurinn en engu að síður er vert að rifja upp þrjár meginstoðir hennar. Græn Norðurlönd. Saman ætlum við að greiða fyrir grænum umskiptum í samfélögum okkar og vinna að kolefnishlutleysi og sjálfbæru hringrásarhagkerfi og lífhagkerfi. Samkeppnishæf Norðurlönd. Saman ætlum við að efla grænan hagvöxt á Norðurlöndum, byggðan á þekkingu, nýsköpun, hreyfanleika og stafrænni samþættingu. Félagslega sjálfbær Norðurlönd. Saman ætlum við að efla samfellt svæði án aðgreiningar þar sem jafnrétti ríkir og sem byggist á sameiginlegum gildum og enn öflugri menningarsamskiptum og velferð. Markmiðin eru í sjálfu sér lofsverð en faraldurinn hefur sýnt fram á mikla bresti í samstarfinu og í dag virkar framtíðarsýnin sem hjómið eitt. Til að hægt sé að endurvekja trú á sameiginleg gildi þarf að styrkja samstarfið víða og ekki síst á sviði umhverfis- og loftslagsmála sem aftur þýðir miklar breytingar á fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Fyrstu breytingarnar á fjárhagsáætlun áranna 2021 – 2024 hafa þegar verið kynntar með niðurskurði til mennta- og menningarmála um 23% sem eiga að færast yfir til umhverfismála. Niðurskurðurinn á að gerast í skrefum en á þeirri leið minnkar framlag til samstarfs í menningu um allt að 2 miljarða (12 miljónir evra) og menntamála um 750 miljónir (4,7 miljónir evra). Framlag til umhverfismála eykst um 1,2 miljarða (7,2 miljónir evra). Niðurskurðurinn sem kemur harðast niður á menningarmálum er réttlættur með því að þrátt fyrir hann verður aðaláhersla norrænnar samvinnu áfram menntun og menning. Þetta rímar illa við þá meginstoð framtíðarsýnarinnar um „Félagslega sjálfbær Norðurlönd“ þar sem norræn menning hefur verið eitt helsta sameiningartákn Norðurlanda í yfir 100 ár. Frá stofnun Norrænu félaganna árið 1919 hafa Norðurlöndin glímt við ýmiss vandamál og áskoranir og nálgast á mismunandi hátt sbr. varnarmál og efnahagsmál en félagslegi þátturinn hefur einkennst af sameiginlegri sögu og sameiginlegri menningu. Mitt í kórónuveirufaraldrinum er það ekki ákjósanlegt að veikja þær grunnstoðir sem þó halda okkur saman. Ef skilningur og þekking á hvert öðru minnkar getur orðið erfitt að koma sér saman um áherslur á nýjum vettvangi. Framlag til umhverfismála eykst og er það vel en það má ekki gerast á kostnað menningar- og menntamála. Sú áhætta sem tekin er með minni áherslu á samnorræn mennta- og menningarmál getur haft veruleg áhrif í för með sér og hætta er á að norrænt samstarf verði aldrei samt og það án þess að tryggt sé að samstarf í umhverfis- og loftslagsmálum skili miklu þegar til lengri tíma er litið. Framtíðarsýn um græn Norðurlönd er mjög metnaðarfull og er það vel. Að sama skapi verður kostnaðurinn mikill og miklu meiri en fjárhagur Norrænu ráðherranefndarinnar ræður við. Ljóst er að til að hægt sé að hrinda verkefnum um grænar lausnir í samgöngum og ferðamáta þarf að koma til auka fjárframlag frá hverju landi fyrir sig. Sýnin um græn Norðurlönd er langtímamarkmið og verður best náð með samstafi við Norræna fjárfestingabankann og dótturfélag hans Nefco en þar er að finna mikla og farsæla reynslu þegar kemur að fjárfestingum í grænum verkefnum. Nauðsynlegt er að byggja upp traust milli landanna á ný en til þess að það gerist þarf markvisst að efla sameiginleg verkefni til þess að styrkja norrænt samstarf. Norrænu félögin eru framkvæmdaraðili þriggja mikilvægra verkefna: Nordjobb – (vinnur að því að auka hreyfanleika á norræna vinnumarkaðnum og að auka þekkingu á tungumálum og menningu á Norðurlöndunum meðal ungmenna.) Norden i skolan – (er frír kennsluvefur á 5 tungumálum, sem gefur kennurum og nemendum á Norðurlöndum einstakt fækifæri til að efla skilning barna og ungmenna á Norðurlöndum og nágrannamálunum dönsku, norsku og sænsku.) Norræna bókmenntavikan – (leggur áherslu á að kynna og vekja áhuga á norrænum bókmenntum) Öll þessi verkefni eru fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni og eru hluti af þriggjablaða smára sem styrkir samskipti Norðurlanda á sviði hreyfanleika, tungumálaskilnings og menningarlæsi. Nú stendur til að Norræna bókmenntavikan verði alveg strikuð út úr fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2021. Í stað þess að skera niður fjármagn ætti að styrkja norrænt samstarf á eftirtöldum sviðum: a) Hreyfanleiki á milli landanna sem gefur ungmennum tækifæri til að kynnast nágrannalöndunum á eigin skinni b) Menningar- og menntamál sem hefur mikla þýðingu fyrir einstaka hópa og allan almenning til að hægt sé að ná því markmiði að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæð heims. Eitt ætti ekki að útiloka annað og því engin ástæða til að framlag til ofangreindra þátta komi niður á umhverfis- og loftslagsmálum. Norrænt samstarf þarfnast frekari fjármagns en ekki niðurskurðar. Fjármagn Norrænu ráðherranefndarinnar hefur minnkað síðustu áratugi samanborið við vöxt landsframleiðslu norrænu landanna, í raun er fjármagnið helmingi minna nú en það var fyrir nokkrum áratugum. Vettvangur aukins samstarfs er til staðar. „Norrænu perlurnar“ sem hýsa menningarsamstarf milli landanna s.s. Hanaholmen í Finnlandi, Biskops Anrö í Svíþjóð, Voksenåsen og Lysebu í Noregi og Schæffergården í Danmörku eru tilvalin vettvangur til aukins menningarsamstarfs. Þar að auki eru menningastofnanir Norrænu ráðherranefndarinnar að finna í Reykjavík, Helsinki, Maríuhöfn, Þórshöfn og Nuuk. Norrænu félögin eru með virkar deildir og starfssemi á öllum þessum stöðum. Það er engin ástæða til að finna upp hjólið á nýtt. Markmiðin eru skýr og í forgangi ætti að vera að byggja upp traust milli Norðurlandanna og Sjálfstjórnarsvæðanna á því sem við eigum sameiginlegt og stuðla að auknum skilningi á því sem skilur okkur að. Hrannar Björn Arnarsson, formaður Sambands Norrænu félaganna og Norræna félagsins á ÍslandiMarion Pedersen, formaður Norræna félagsins í DanmörkuÅsa Torstensson, formaður Norræna félagsins í SvíþjóðJuhana Vartiainen, formaður Norræna félagsins í FinnlandiRune Mørck Wergeland, formaður Norræna félagsins í NoregiTurid Christophersen, formaður Norræna félagsins í FæreyjumMajken Poulsen Englund, formaður Norræna félagsins á ÁlandseyjumJens Kristian Øvstebø, formaður Ungmennasambands Norrænu félaganna Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Utanríkismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Íslendingar erlendis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enga saltdreifara á Bessastaði takk Skírnir Garðarsson Skoðun Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir Skoðun Eins og sandur úr greip Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Sögufölsun eytt í kyrrþey Hjörtur Hjartarson Skoðun Hvernig forseta vilt þú? Valdís Arnarsdóttir Skoðun Spurðu fólkið Halla Tómasdóttir Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Eins og sandur úr greip Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Enga saltdreifara á Bessastaði takk Skírnir Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig forseta vilt þú? Valdís Arnarsdóttir skrifar Skoðun Spurðu fólkið Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Vopn, sprengjur og annað eins Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir skrifar Skoðun Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir skrifar Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason skrifar Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Sjá meira