Erlent

Saksóknarar uggandi yfir pólitískum þrýstingi frá Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
Barr dómsmálaráðherra stendur þétt að baki Trump forseta. Hann skipti sér persónulega af máli vinar forsetans sem var sakfelldur fyrir margvísleg afbrot.
Barr dómsmálaráðherra stendur þétt að baki Trump forseta. Hann skipti sér persónulega af máli vinar forsetans sem var sakfelldur fyrir margvísleg afbrot. Vísir/EPA

Ótti við frekari pólitísk afskipti er sagður ríkja innan stéttar alríkissaksóknara um öll Bandaríkin eftir að dómsmálaráðuneytið hlutaðist til í máli Roger Stone, persónulegs vinar og ráðgjafa Donald Trump forseta. Ráðuneytið tók fram fyrir hendurnar á saksóknurum við ákvörðun refsikröfu yfir Stone eftir að forsetinn tísti um óánægju sína með kröfuna.

Allir alríkissaksóknararnir fjórir sem fóru með mál Stone báðust lausnar frá því á þriðjudag í kjölfar þess að dómsmálaráðuneytið sneri við ákvörðun þeirra um að krefjast sjö til níu ára fangelsisdóms yfir vini forsetans. Einn saksóknaranna sagði alfarið af sér starfi sínu hjá ráðuneytinu.

Kviðdómur sakfelldi Stone fyrir að ógna vitni, ljúga að Bandaríkjaþingi og hindra framgang réttvísinnar. Ráðuneytið lét breyta refsikröfunni og krefst ákæruvaldið nú þriggja til fjögurra ára fangelsisdóms yfir Stone.

Eftir að upphaflega krafa saksóknaranna um lengri dóm varð opinber á mánudag tísti Trump um að krafan væri „ósanngjörn“ og að málsferðin væri hneisa.

Málið hefur vakið upp spurningar um sjálfstæði dómsmálaráðuneytisins og hvort að William Barr, dómsmálaráðherra, láti pólitískan viljan Trump forseta hafa áhrif á störf saksóknara.

Stone var grunaður um að hafa verið í samskiptum við Wikileaks um gögn sem var stolið úr tölvum Demókrataflokksins. Hann var sakfelldur fyrir að ógna vitni, ljúga að Bandaríkjaþingi og hindra framgang réttvísinnar.Vísir/EPA

Óttast að ráðherrann styðji þau ekki í málum með pólitíska þýðingu

New York Times segir að alríkissaksóknarar um öll Bandaríkin séu uggandi um frekari pólitísk afskipti Trump forseta eftir mál Stone. Fram að þessu hafa sakamálasaksóknir sætt litlum pólitískum afskiptum jafnvel þó að breytingar hafi orðið á ýmsum deildum dómsmálaráðuneytisins eftir embættistöku Trump. Í ljósi Stone-málsins óttist saksóknarar að verða fyrir vaxandi þrýstingi frá forsetanum í málum sem hann lætur sig varða.

Þeir saksóknarar sem blaðið ræddi við sögðu þegar hafa hikað við að taka að sér mál sem Trump gæti haft áhuga á. Áhyggjur þeirra hafi aðeins ágerst vegna máls Stone. Þeir óttast einnig að Barr ráðherra myndi ekki styðja þá í málum með mikla pólitíska þýðingu.

Barr hefur samþykkt að svara spurningum dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í lok mars. Það verður í fyrsta skipti sem hann kemur fyrir nefndina frá því að hann tók við embætti í byrjun síðasta árs.

Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa jafnframt óskað eftir því að innri endurskoðandi dómsmálaráðuneytisins rannsaki hvernig það fór með mál Stone.

Trump hefur tíst ótt og títt um mál vinar síns, Roger Stone, undanfarna daga. Hann hrósaði dómsmálaráðherra sínum fyrir að grípa inn í málið.AP/Carolyn Kaster

Ráðherrann greip sjálfur inn í

Dómsmálaráðuneytið hefur fullyrt að það hafi ákveðið að lækka refsikröfu saksóknaranna yfir Stone áður en Trump tísti um málið á mánudag. Engin samskipti hafi átt sér stað á milli ráðuneytisins og Hvíta hússins, hvorki á mánudag né þriðjudag.

New York Times segir að Timothy Shea, starfandi umdæmissaksóknari Columbia-svæðis í Washington-borg, hafi sagt saksóknurunum í máli Stone að hann vildi milda refsingu yfir honum og minnt þá á að þeir hefðu heimild til að víkja frá viðmiðum um refsingu á mánudag.

Shea, sem hefur verið einn af nánustu ráðgjöfum Barr dómsmálaráðherra um árabil, gaf eftir þegar þrír af saksóknurum fjórum hótuðu að segja sig frá málinu. Refsikröfunni var samt sem áður breytt eftir að Barr ráðherra og Jeffrey Rosen, aðstoðardómsmálaráðherra, gripu inn í á þriðjudag.

Trump gróf heldur undan fullyrðingum ráðuneytisins um að það hefði ekki hlutast til í máli Stone vegna þrýstings forsetans. Eftir að refsikrafan var milduð óskaði Trump dómsmálaráðherra sínum til hamingju með að hafa „tekið við stjórnina í máli sem var algerlega stjórnlaust“ í tísti. Talsmaður dómsmálaráðuneytisins vildi ekki bregðast við tísti forsetans þegar Washington Post leitaði eftir því í gær.

Barr talinn tefla sjálfstæði ráðuneytisins í tvísýnu

Nokkrir núverandi og fyrrverandi embættismenn dómsmálaráðuneytisins eru sagðir hafa lengi óttast að Barr ráðherra sé tilbúinn að fórna sögulegu sjálfstæði þess til að þjóna duttlungum forseta sem hefur virt það að vettugi með linnulitlum árásum á löggæslu- og dómsmálayfirvöld.

Barr hefur ítrekað sætt gagnrýni fyrir að virðast ganga pólitískra erinda forsetans. Nýlega viðurkenndi Barr þannig að ráðuneyti hans hefði komið upp formlegu ferli til þess að taka við upplýsingum sem Rudy Giuliani, persónulegum lögmanni Trump forseta, hefur reynt að grafa upp um Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og mögulegan mótframbjóðanda Trump í forsetakosningum á þessu ári, í Úkraínu. Þrýstingsherferð Trump og Giuliani til að fá úkraínsk stjórnvöld til að rannsaka Biden varð til þess að fulltrúadeild Bandaríkjaþings kærði Trump fyrir að misbeita valdi sínu. Öldungadeildin sýknaði forsetann í síðustu viku.

Giuliani er sjálfur til rannsóknar alríkissaksóknara í New York vegna viðskiptatengsla við tvo fjárhagslega bakhjarla Repúblikanaflokksins sem eru grunaðir um að hafa brotið lög um fjárframlög til stjórnmálaflokka.

Áður en rannsóknarskýrsla Roberts Mueller, þáverandi sérstaka rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, um meint samráð forsetaframboðs Trump við Rússa og hvort forsetinn hefði hindrað framgang réttvísinnar var gerð opinber í fyrra hélt Barr blaðamannafund þar sem hann kynnti eigin túlkun á niðurstöðum rannsóknarinnar. Mueller er sagt hafa gramst hvernig Barr lýsti niðurstöðum svo að hann hafi sent ráðherranum bréf til að mótmæla því.

Eftir að Rússarannsókninni svonefndu lauk fól Barr alríkissaksóknara frá Connecticut að rannsaka tilurð hennar eins og Trump forseti hefur lengi krafist. Hann hefur persónulega ferðast víða um heim til að reyna að afla upplýsinga sem hann og forsetinn telja að geta stutt kenningar þeirra um að rannsóknin hafi átt sér pólitískar rætur.


Tengdar fréttir

Mun svara fyrir inngrip dómsmálaráðuneytisins

William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur samþykkt að mæta fyrir þingnefnd og svara spurningum þingmanna vegna inngrips dómsmálaráðuneytisins í mál gegn vini og bandamanni Donalds Trump forseta í kjölfar þess að forsetinn gagnrýndi málareksturinn gegn honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×