Viktor, Óðinn og Arnar höfðu betur í Íslendingaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. febrúar 2020 17:30 Markvörslur Viktors voru lykillinn að sigri GOG í dag. Vísir/Bára
GOG hafði naumlega betur gegn Skjern í Íslendingaslag dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag, lokatölur leiksins 28-27. Leikur dagsins var einkar jafn og munurinn á liðunum sjaldnast meira en eitt mark. Gestirnir í Skjern náðu þó þriggja marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 10-7. Sú forysta var hins vegar komin niður í eitt mark þegar flautað var til hálfleiks. Staðan þá 15-14 Skjern í vil. Áfram hélt leikurinn að sveiflast fram og til baka í síðari hálfleik en Skjern virtist þó alltaf skrefi á undan. Eða allt þangað til Viktor Gísli Hallgrímsson fann taktinn í marki heimamanna og varði vel á mikilvægum augnablikum leiksins. Markvörslur hans gáfu GOG möguleikann á að ná tveggja marka forystu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Staðan þá 27-25 og tókst GOG á endanum að sigla stigunum tveimur heim með eins marks sigri, lokatölur 28-27. Viktor Gísli varði 12 skot í marki GOG og þá skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson þrjú mörk. Arnar Freyr Arnarsson komast ekki á blað. Í liði Skjern skoraði Elvar Örn Jónsson átta mörk og var markahæstur í þeirra liði. Þá varði Björgvin Páll Gústavsson þrjú mörk í markinu. GOG er eftir sigurinn með 26 stig í 3. sæti deildarinnar á meðan Skjern er í því 5. með 23 stig.
Danski handboltinn Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Íslenski boltinn Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti Fleiri fréttir Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ „Finnst þetta geðveikur sigur“ „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Hetjan Símon: „Helvítis léttir“ Uppgjörið: FH-Afturelding 27-26 | FH-ingar tóku forystuna með síðasta skoti leiksins Sjá meira