Lagði hald á nokkur vopn Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. febrúar 2020 06:58 Alls komu fimmtíu mál inn á borð lögreglu frá því klukkan fimm í gær og þar til fimm í morgun.
Lögregla lagði hald á nokkur vopn er hún stöðvaði ökumann í Árbæ í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var handtekinn en látinn laus að lokinni sýna- og skýrslutöku, að því er segir í dagbók lögreglu. Lögregla handtók mann seint á fjórða tímanum í nótt í Vesturbæ Reykjavíkur. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið „mjög ölvaður“ og verið með ónæði og háreysti þar sem hann gekk á miðri akbraut. Maðurinn var vistaður í fangageymslu eftir að „vægari úrræði dugðu ekki til“, líkt og segir í dagbók lögreglu. Þá óskaði starfsfólk fjögurra verslana óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar. Í einu tilvikinu hljóp þjófurinn út með fulla körfu af vörum en fannst skömmu síðar. Hann var laus að lokinni skýrslutöku á vettvangi. Starfsfólk vínveitingastaðar á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna fólks með dólgslæti, sem m.a. hafði brotið glas. Einn neitaði að yfirgefa staðinn og veitti mótspyrnu við handtöku. Hann var vistaður í fangageymslu. Einnig var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna manns í annarlegu ástandi sem svaf í strætó í Garðabæ. Maðurinn var vistaður í fangageymslu þar til ástand hans lagast. Þá rannsakar lögregla tilraun til innbrots í heimahús í Breiðholti. Í dagbók lögreglu segir að málið sé í rannsókn og unnið eftir vísbendingum. Alls komu fimmtíu mál inn á borð lögreglu frá því klukkan fimm í gær og þar til fimm í morgun. Sex gistu fangageymslu.
Garðabær Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira