Viðskipti erlent

Viaplay hirðir enska boltann af TV2

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Pep Guardiola og Jürgen Klopp munu kljást á Viaplay næstu árin.
Pep Guardiola og Jürgen Klopp munu kljást á Viaplay næstu árin. GETTY/ANDREW POWELL

Norræna fjölmiðlafyrirtækið Nordic Entertainment Group (NENT), sem gerir út streymisveituna Viaplay, hefur öðlast sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku árin 2022 til 2028. Frá þessu greina norrænir miðlar í morgun, til að mynda vefur TV 2 sem sýnt hefur frá enska boltanum í Noregi um árabil.

NENT er nú þegar með sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi til ársins 2022. Þar að auki hefur Viaplay boðið upp á útsendingar frá þýsku bundesligunni, frönsku Ligue 1 og Meistaradeild Evrópu. Þá munu Danir fylgjast með Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar í gegnum streymisveituna.

Í samtali við VG segir Olav T. Sandnes, forstjóri TV 2 í Noregi, að tilboð Viaplay í sýningaréttinn hafi einfaldlega verið of hátt. Reikningsdæmið hjá TV 2 hafi ekki gengið upp og því fór sem fór. „Við höfum vitaskuld rétt á því að vera vonsvikin í dag. Við höfum þó alltaf vitað að sýningarrétturinn er aðeins til leigu, ekki eignar. Ég trúi því að enska úrvalsdeildin komi aftur til TV2 einn góðan veðurdag,“ segir Sandnes.

Haft er eftir Anders Jensen, forseta og framkvæmdastjóra NENT, í tilkynningu sem send var út vegna tíðindanna að enska úrvalsdeildin hafi verið einn af hornsteinum íþróttatengdrar afþreyingar hjá Viaplay. Nýi sýningarrétturinn í Noregi renni styrkari stoðum undir frekari framþróun á „þessu frábæra íþróttaefni“ að sögn Jensen.

Líklegt til að leika sama leikinn hér

Viaplay boðaði síðastliðið haust að Íslendingar gætu gerst áskrifendur að norrænu streymisveitunni á fyrri hluta þessa árs. Íslendingar munu þó ekki geta fylgst með leikjum úr enska boltanum eða Meistaradeildinni á Viaplay meðan íslensk fjarskiptafyrirtæki hafa sýningarréttinn, Síminn að ensku úrvalsdeildinni en Sýn að Meistaradeild Evrópu.

Fastlega er hins vegar gert ráð fyrir að Viaplay muni bjóða í sýningarréttinn að báðum deildum á Íslandi þegar fyrirliggjandi samningar renna út. Sýningarréttur Símans rennur út árið 2022 en Sýnar rennur út við lok tímabilsins 2021.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×