Vandræðalaust hjá Haukastelpunum sem eru síðasta liðið í Höllina Anton Ingi Leifsson skrifar 6. febrúar 2020 21:47 Sara Odden átti flottan leik í kvöld. vísir/bára
Haukar urðu í kvöld síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Coca-Cola bikar kvenna er liðið vann stórsigur á 1. deildarliði Fjölnis, 33-20. Jafnræði var með liðunum fyrstu tíu mínúturnar en þá skildu leiðir. Haukarnir breyttu stöðunni úr 4-4 í 10-4 og voru 16-9 yfir í hálfleik. Þær héldu heimastúlkum í þægilegri fjarlægð frá sér í síðari hálfleik og sigurinn aldrei í hættu. Lokatölur 33-20. Berta Rut Harðardóttir var frábær í liði Hauka. Hún skoraði tíu mörk úr tíu skotum en Sara Odden skoraði fimm. Saga Sif Gísladóttir varði helming þeirra skota sem hún fékk á sig í markinu. Guðrún Jenný Sigurðardóttir var í sérflokki í liði Fjölnis en hún skoraði níu mörk. Samherjar hennar náðu ekki að fylgja henni eftir en Kolbrún Arna Garðarsdóttir skoraði þrjú mörk. Það verða því Haukar, Valur, Fram og KA/Þór sem verða í úrslitahelginni í Höllinni í byrjun mars.
Íslenski handboltinn Mest lesið Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Bjarki Már til franska stórveldisins Handbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira