Erlent

Komið annað hljóð í strokkinn hjá Repúblikönum

Samúel Karl Ólason skrifar
Mitch McConnell, forseti öldungadeildarinnar, hefur staðið hvað harðast gegn því að kalla til vitni.
Mitch McConnell, forseti öldungadeildarinnar, hefur staðið hvað harðast gegn því að kalla til vitni. Vísir/AP

Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins virðast margir hverjir hafa stokkið á rök lögmannsins Alan Dershowitz, eins verjanda Donald Trump, forseta, um að þó svo að Trump væri sekur um það sem hann var ákærður fyrir, sé ekki tilefni til að víkja honum úr embætti. Þessi sömu þingmenn höfðu áður haldið því fram að engar upplýsingar hefðu litið dagsins ljós sem sönnuðu að Trump beitti utanríkisstefnu Bandaríkjanna og opinberu fé í pólitískum tilgangi.

Ein helsta vörn Trump-liða hefur hingað til verið sú að rannsókn fulltrúadeildarinnar hafi verið gölluð og drifin áfram af pólitík og hatri gagnvart Trump. Þar að auki hafi verið skortur á mikilvægum sönnunargögnum og vitnisburði. Því hefur verið haldið fram, þrátt fyrir að Hvíta húsið hafi alfarið neitað að afhenda gögn sem fulltrúadeildin krafðist og meinaði mikilvægum vitnum að bera vitni.

Síðan fréttir unnar úr óútgefinni bók John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump, voru birtar hefur tónninn þó breyst í þingmönnum Repúblikanaflokksins. Bolton heldur því fram í umræddri bók að Trump hafi sagt honum persónulega að hann hafi fryst tæplega 400 milljóna neyðaraðstoð til Úkraínu, sem þingið hafði samþykkt, til að þrýsta á Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu.

Zelensky átti að tilkynna opnun tveggja rannsókna sem Trump hefði hagnast persónulega á. Önnur rannsóknin sneri að Joe Biden, sem var og er mögulega enn hvað líklegastur til að hljóta tilnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar á þessu ári.

Sjá einnig: Pressa á Repúblikönum

Trump var ákærður fyrir að tvö meint embættisbrot. Annars vegar fyrir að misnota vald sitt og hins vegar fyrir að standa í vegi þingsins varðandi rannsókn fulltrúadeildarinnar á fyrra brotinu.

Krefjast vitna en án árangurs

Demókratar hafa reynt að nota þessar fréttir um Bolton til að fá ný sönnunargögn í réttarhöldin og John Bolton verði kallaður til að bera vitni en Repúblikanar, sem eru í meirihluta í öldungadeildinni, hafa hingað til komið í veg fyrir það.

Dershowitz steig svo í pontu síðustu nótt og sagði að jafnvel þótt ásakanirnar væru réttar, væri það ekki tilefni til að vísa forsetanum úr embætti. Þetta hafa þó nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins tekið undir.

Eins og bent er á í frétt Washington Post eru þetta stórar yfirlýsingar og gefa ummælin í skyn að þingmennirnir séu þeirrar skoðunar að forseti megi nota opinbert fé til að þvinga bandamenn Bandaríkjanna til að rannsaka bandaríska borgara sem eru að bjóða sig fram gegn umræddum forseta, og það án afleiðinga.

Einnig er bent á í fréttinni að þingmenn Repúblikanaflokksins hafa með öllu móti barist gegn því að svara spurningum um hvort þeir telji aðgerðir Trump viðeigandi. Einhverjir hafa jafnvel orðið bálreiðir þegar gengið hefur verið á þá með svör.

Varnir snerust ekki um staðreyndir

Verjendur Trump luku máli sínu í dag og enduðu þeir á því að biðja Repúblikana um að hunsa áköll Demókrataeftir vitnum og sönnunargögnum. Þingmenn munu greiða atkvæði um það á föstudaginn.

Á morgun og hinn munu þingmenn fá átta tíma á dag til að spyrja spurninga. Á föstudaginn munu þingmenn fá fjóra tíma til að ræða málið sína á milli og svo greiða atkvæði um hvort kalla eigi til vitni.

Að mestu leyti snerust varnir lögmanna Trump ekki um staðreyndir málsins heldur gagnrýndu lögmennirnir rannsókn fulltrúadeildarinnar og Demókrata fyrir að hafa ákært Trump. Meðal annars héldu lögmennirnir því fram að Demókratar væru að reyna að ógilda forsetakosningarnar 2016, jafnvel þó það liggi fyrir að yrði Trump vikið úr embætti myndi Mike Pence, varaforseti, taka við af honum.

Lítið til í ásökunum Trump

Forsetinn og bandamenn hans hafa sakað Joe Biden um spillingu vegna þess að hann þrýsti á úkraínsk stjórnvöld að reka saksóknara á sama tíma og Hunter, sonur hans, sat í stjórn olíufyrirtækisins Burisma Holdings. Það eigi Biden að hafa gert til að stöðva rannsókn sem beindist að Burisma, samkvæmt kenningu Trump-liða og vill forsetinn að Úkraínumenn rannsaki það.

Ekkert hefur þó komið fram sem bendir til þess að Biden-feðgarnir hafi gert nokkuð ólöglega eða að rannsókn hafi yfir höfuð staðið yfir á Burisma á þeim tíma sem þáverandi varaforsetinn reyndi að koma saksóknara frá. Sú viðleitni var hluti af alþjóðlegum þrýstingi þar sem vestræn ríki töldu saksóknarann ljón í vegi þess að uppræta langvarandi spillingu í Úkraínu.

Sjá einnig: Repúblikanar vildu einnig láta reka saksóknarann úkraínska

Hin rannsóknin tengist samsæriskenningu um tölvupóstþjón landsnefndar Demókrataflokksins sem rússneskir hakkarar brutust inn í fyrir forsetakosningarnar 2016 og láku vandræðalegum póstum í gegnum Wikileaks. Trump hefur lengi verið gramur vegna niðurstöðu bandarísku leyniþjónustunnar að rússnesk stjórnvöld hafi háð upplýsingastríð og framið tölvuinnbrot til að hjálpa honum til sigurs.

Trump og bandamenn hans hafa því haldið þeirri hugmynd á lofti um að það hafi í reynd verið úkraínskir útsendarar sem frömdu innbrotið í tölvupóstþjón demókrata og að þeir hafi bókstaflega falið áþreifanlegan tölvupóstþjón í Úkraínu. Markmiðið hafi verið að koma sök á Rússa. Það er, eins og áður hefur komið fram, þvert á öll sönnunargögn og niðurstöður öryggisstofnanna í bandaríkjunum og sérfræðinga.

Þessu hafa Trump-liðar og þar með taldir nokkrir þingmenn, haldið áfram að dreifa. Þrátt fyrir að embættismenn og forsvarsmenn öryggisstofnanna hafi varað þá við því að ásakanirnar gegn Úkraínu séu runnar undan rifjum þeirra sömu Rússa og gerðu árásina á tölvukerfi Landsnefndar Demókrataflokksins.


Tengdar fréttir

16.241 fölsk eða villandi staðhæfing á þremur árum

Nærri því fimmtungi allra ósanninda sinna varpar Trump fram á Twitter og þar að auki er hann mjög líklegur til að endurtaka lygar ítrekað. Allt í allt hefur hann sagt 400 lygar oftar en þrisvar sinnum.

Þingmenn að farast úr leiðindum

Miðað við fyrstu viðbrögð öldungadeildarþingmanna Repúblikanaflokksins, sem hafa rætt við fjölmiðla í hléum á réttarhöldunum gegn Donald Trump, forseta, er ekki útlit fyrir að málflutningur flutningsmanna fulltrúadeildarinnar hafi áhrif á þá.

Kalla eftir hugrekki meðal öldungadeildarþingmanna

Demókratar vörðu fyrstu lotunni í opnunarræðum sínum til að fara með nánum hætti yfir meint embættisbrot Donald Trump, forseta, og af hverju öldungadeildarþingmenn ættu að sakfella hann og víkja honum úr embætti.

Pressa á Repúblikönum

Tveir mikilvægir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins segja fregnir um John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Donald Trump, ýta undir það að kalla eigi hann, og mögulega aðra, til að bera vitni í réttarhöldunum gegn Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×