Innlent

Kveikti í fötum sínum í and­dyri lög­reglu­stöðvarinnar við Hverfis­götu

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn var búinn að læsa útihurðinni innan frá.
Maðurinn var búinn að læsa útihurðinni innan frá. vísir/vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann í annarlegu ástandi í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu þar sem hann var búinn að kveikja í fatnaði sínum við útidyrnar.

Í dagbók lögreglu segir að atvikið hafi átt sér stað skömmu eftir miðnætti.

Þar segir að maðurinn hafi einnig verið búinn að læsa útihurðinni innan frá.

„Maðurinn var tekinn í tök og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu,“ segir í dagbók lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×