Guðmundur er afskaplega glaður að hafa lifað af dauðariðilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2020 12:07
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, er sáttur með árangur íslenska liðsins í riðlakeppninni þrátt fyrir tapið á móti Ungverjum í gær. Íslenska liðið komst áfram með Ungverjum en stórar handboltaþjóðir eins og Danmörk og Rússland sátu eftir og eru á heimleið. „Við getum bætt okkur heilmikið og höfum farið yfir þetta í morgun. Við erum að fara mæta frábæru liði en við sjáum fullt af tækifærum til að bæta okkar leik,“ sagði Guðmundur á blaðamannafundinum í dag. Landsliðsþjálfarinn er mjög ánægður með að hafa komist áfram í milliriðilinn. „Við erum afskaplega glaðir að vera í hópi þessara tólf liða. Mér fannst það frábær árangur því við vorum í erfiðum riðli. Þetta var svokallaður dauðariðill og það hefur ekki tekist hjá íslenska liðinu að komast áfram á síðustu tveimur stórmótum. Við erum stoltir af því,“ sagði Guðmundur. Guðmundur landsliðsþjálfari segir að síðustu fimmtán mínúturnar hafi ekki verið nógu góðar í leiknum á móti Ungverjalandi. „Við gerðum ekki nægilega vel. Það er tvennt sem situr í manni. Sóknarleikurinn var ekki nægilega góður og við lentum í vandræðum með línumennina þeirra. Markvörðurinn var svo að taka of marga bolta,“ sagði Guðmundur.
EM 2020 í handbolta Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira