Handbolti

Uppgjör Henrys: Ekki dauðir enn

Henry Birgir Gunnarsson í Malmö skrifar
Guðjón Valur var frábær í dag. Hann fagnar hér eftir leikm með Sigvalda.
Guðjón Valur var frábær í dag. Hann fagnar hér eftir leikm með Sigvalda. vísir/epa

Ólympíudraumurinn lifir hjá strákunum okkar eftir magnaðan sigur, 28-25, á spútnikliði Portúgal. Frábærlega útfærður leikur hjá íslenska liðinu skilaði þessum sigri.

Ég sá það strax í upphitun að það var meiri orka og kraftur í strákunum en í síðustu leikjum. Meiri öskur og meiri læti. Það skilaði sér heldur betur inn í leikinn.

Frábær byrjun

Strákarnir mættu ofurpeppaðir inn í leikinn og allt annað að sjá orkuna en í síðustu leikjum. Þeir komust í 4-0 og Portúgal skoraði ekki mark fyrr en eftir níu mínútur. Ísland hefði þá átt að vera með meira forskot en liðið fór illa með nokkur góð færi í upphafi leiks.

Varnarleikurinn var geggjaður og vopnin sleginn úr höndum Portúgala. Íslenski múrinn haggaðist ekki.

Að sama skapi var sóknarleikurinn ótrúlega vel útfærður. Yfirvegun og skynsemi. Menn að velja vel og Janus Daði að stýra liðinu eins og hershöfðingi.

Varnarjaxlinn Ýmir Örn átti enn og aftur stórleik.vísir/epa

Helvítis slæmi kaflinn



Það hafa verið talsverðar sveiflur í leik liðsins á mótinu og „slæmi kaflinn“ kom um miðjan fyrri hálfleik. 5-1 kafli hjá Portúgölum og munurinn eitt mark, 11-10. Strákarnir héldu samt haus og leiddu 14-12 í hálfleik.

Síðari hálfleikur byrjaði mjög illa. Portúgalir fóru að spila með sjö menn í sókn sem þeir gera svo vel og jafna, 14-14. Þá sögðu strákarnir hingað og ekki lengra. Vörnin small og sjö Portúgalar fundu engin svör á stórkostlegri vörn Íslands. Á endanum gáfust Portúgalir upp á þessu. Það var búið að máta þá.

Lokakaflinn var æsispennandi en strákarnir hleyptu Portúgal aldrei fram úr sér og fögnuðu innilega frábærum sigri. Þeir voru með bakið upp við vegginn og svöruðu frábærlega.

Janus Daði blómstrar

Fyrsta hrós dagsins fær Janus Daði Smárason. Það er búin að vera hrein unun að fylgjast með honum í Malmö. Spilar frábærlega og betur með hverjum leik. Þetta var líklega besti landsleikur hans frá upphafi.

Alexander Petersson virtist hafa fundið bensínstöð því það var mikil orka í honum í kvöld. Vélmennið engu líkt. Mikilvæg mörk, frábærar stoðsendingar og grjótharður í vörninni. Þessi 39 ára gæi að skila frábæru móti heilt yfir.

Hinn öldungurinn, Guðjón Valur, minnti líka enn og aftur á af hverju hann er enn byrjunarliðsmaður í liðinu. Skoraði úr öllum sínum skotum, stal fimm boltum og dreif liðið áfram. Ótrúlegur fagmaður.

Fögnuðurinn var innilegur í leikslok.vísir/epa

Leiðtoginn Aron



Ég skrifaði í síðasta pistli mínum að því miður liti út fyrir að Aron Pálmarsson yrði ekki að þeim leiðtoga í liðinu sem allir eru að vonast eftir. Hann stakk því fallega ofan í kokið á mér í dag. Megi hann gera það sem oftast.

Hann gat reyndar ekki neitt í fyrri hálfleik en steig upp er liðið þurfti á honum að halda í síðari hálfleik. Varð að leiðtoga og dró loksins vagninn fyrir liðið í jöfnum leik. Skoraði gríðarlega mikilvæg mörk og lagði upp sömuleiðis. Afar fallegt að sjá og megi hann halda áfram á þessari braut.

Björgvin Páll Gústavsson var frábær í búrinu og hefur heldur betur sannað á mótinu að það var hárrétt ákvörðun að kalla hann aftur inn í liðið. Hann og Viktor Gísli ná vel saman.

Svo verður að ræða um naglana í vörninni. Djöfulsins naglar sem það eru. Ýmir Örn Gíslason er að vinna hjörtu þjóðarinnar með æðislegum varnarleik sínum og hörku. Það má svo ekki gleyma Elvari Erni Jónssyni sem hefur ekki verið mikið síðri við hliðinu á honum. Gummi Gumm virðist vera búinn að finna nýja Didda og Sverre í vörninni eftir talsverða leit.

Svo má auðvitað ekki gleyma að hrósa Guðmundi og þjálfarateyminu. Enn og aftur er leikur Íslands stórkostlega uppsettur af þeirra hálfu og nóg af svörum við öllu. Frábær frammistaða hjá þeim allt mótið.

Eins og áður lifir ÓL-draumurinn og strákarnir sýndu í fyrsta leik að þeir geta staðið í hvaða liði sem er. Eftir þennan leik í dag er ég orðinn spenntur fyrir Noregs-leiknum en mig kveið fyrir honum í gær. Þar verður allt skilið eftir á gólfinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×