Innlent

Icelandair og FVFÍ undirrita kjarasamning

Sylvía Hall skrifar
Samningurinn verður nú lagður fyrir félagsmenn.
Samningurinn verður nú lagður fyrir félagsmenn. Vísir/Vilhelm

Icelandair og Flugvirkjafélag Íslands hafa endurnýjað kjarasamning á milli félaganna. Samningarnir gilda til 31. desember árið 2020.

Launahækkanir í kjarasamningnum eru í samræmi við þær launahækkanir sem samið hefur verið um milli stéttarfélaga og félaga atvinnurekanda á þessu ári að því er segir í fréttatilkynningu frá Icelandair um samninginn og er þar átt við lífskjarasamningana.

Flugvirkjafélag Íslands mun nú leggja samninginn fyrir félagsmenn sína til atkvæðagreiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×