Erlent

Vinstristjórn komin til valda á Spáni

Kjartan Kjartansson skrifar
Sánchez (t.v.) og Pablo Iglesias, leiðtogi Við getum, fagna sigri eftir atkvæðagreiðsluna í þinginu í dag.
Sánchez (t.v.) og Pablo Iglesias, leiðtogi Við getum, fagna sigri eftir atkvæðagreiðsluna í þinginu í dag. Vísir/EPA

Ný ríkisstjórn Sósíalistaflokksins og vinstriflokksins Við getum var samþykkt á spænska þinginu með aðeins tveggja atkvæða mun í dag. Þetta verður fyrsta samsteypustjórn Spánar frá því fyrir borgarastríðið á 4. áratug síðustu aldar.

Einfaldur meirihluti þingmanna greiddi nýju minnihlutastjórninni atkvæði sitt í dag. Auk þingmanna Sósíalistaflokksins og Við getum studdu nokkrir héraðsflokkar, þar á meðal Baska og Katalóna, Pedro Sánchez, starfandi forsætisráðherra og leiðtoga sósíalista, sem forsætisráðherra. Átján þingmenn katalónskra sjálfstæðissinna og baskneskra þjóðernissinna sátu hjá.

Lítið má út af bregða hjá nýju ríkisstjórninni en hún hélt aðeins velli með tveggja atkvæða mun. Spænska dagblaðið El País segir að Sánchez verði mögulega svarinn í embætti þegar á morgun.

Á stefnuskrá nýju ríkisstjórnarinnar er að hækka skatta á þá tekjuhæstu og stórfyrirtæki og að hækka lágmarkslaun. Hún mun þurfa að reiða sig á stuðning þingmanna annarra flokka til að koma einstökum málum í gegnum þingið.

Stjórnarkreppa hefur ríkt á Spáni undanfarin ár og voru þingkosningarnar í nóvember þær fjórðu frá árinu 2015. Landinu hefur verið stýrt af Lýðflokknum og sósíalistum til skiptis frá því að lýðræði var komið aftur á eftir dauða einræðisherrans Franco árið 2014. Ný ríkisstjórnin er fyrsta samsteypustjórnin á Spáni frá því á tíma annars lýðveldisins svonefnda sem varði frá 1931 til 1939.

Þingið hafnaði nýju stjórninni í atkvæðagreiðslu sem fór fram á sunnudag þar sem hún þurfti hreinan meirihluta þingmanna. Í seinni atkvæðagreiðslunni í dag dugði einfaldur meirihluti.


Tengdar fréttir

Hillir undir nýja ríkisstjórn á Spáni

Flokkur katalónskra sjálfstæðissinna hefur samþykkt að verja minnihlutastjórn vinstriflokkanna falli. Atkvæði verða greidd um traust á slíkri stjórn á spænska þinginu á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×