Innlent

Segir verkalýðsforingja reyna að knésetja Icelandair

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Þorsteinn Víglundsson segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar vera til skammar.
Þorsteinn Víglundsson segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar vera til skammar. Vísir/Einar Árna

Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA, segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar, til skammar með því að reyna að hafa áhrif á ákvarðanatöku um fjárfestingar í Icelandair. Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, segir að fulltrúum í stjórnum lífeyrissjóða sé óheimilt að láta undan slíkum þrýstingi. Miklir almannahagsmunir séu í húfi.

Í yfirlýsingu á föstudag beinir stjórn VR þeim tilmælum til þeirra stjórnarmanna, sem VR skipar í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, „að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair“ og félagið sakað um að stunda félagslegt undirboð með því að úthýsa störfum til landa þar sem réttindi séu fótum troðin.

Yfirlýsingin hefur vakið hörð viðbrögð en forstjóri Icelandair og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru meðal þeirra sem telja tilefni til að Fjármálaeftirlitið skoði málið. Þá hafa einhverjir starfsmenn Icelandair sem eru félagsmenn í VR íhugað að segja sig úr félaginu.

Miklir almannahagsmunir í húfi

„Það hefur ekki ennþá verið eitthvað tilefni til þess að stíga eitthvað inn í þessi orðaskipti sem hafa farið fram í fjölmiðlum,“ segir Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits [áður forstjóri FME]. Eftirlitið fylgist þó grannt með.

Unnur segir að fordæmi séu þó fyrir því að FME hafi stígið inn í sambærilegum málum. Hún ítrekar mikilvægi þess að fulltrúar í stjórnum lífeyrissjóða láti ekki undan utanaðkomandi þrýstingi.

Unnur Gunnarsdóttir er varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.Vísir/Einar Árna

„Þeir eiga ekki að fara eitthvað eftir þrýstingi frá hagsmunasamtökum, þó að hagsmunasamtökin, þeim sé treyst til að tilnefna stjórnarmenn þá eiga stjórnarmenn að fara eftir eigin sannfæringu við ákvarðanir og ég veit að þeir gera sér mjög vel grein fyrir því,“ segir Unnur.

Mikið sé í húfi þegar málefni lífeyrissjóða eru annars vegar. „Lífeyrissjóðirnir eru orðnir afskaplega stórir á Íslandi, eignamassinn samtals er yfir 170% af landsframleiðslu. Þannig það eru miklir almannahagsmunir sem hér er verið að fjalla um,“ segir Unnur.

Segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar til skammar

Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur einnig gegnt hlutverki formanns og varaformanns Gildis lífeyrissjóðs.

„Stjórnir lífeyrissjóða eiga bara að vega hagsmuni sína og sjóðsfélaga sinna út frá engu öðru heldur en fjárfestingunni sjálfri. Ekki vera að beina verkalýðspólitík inn á stjórnarborðið eða beita lífeyrissjóðum með einhverjum hætti í kjaradeilu. Það brýtur beinlínis gegn lögum um lífeyrissjóði. Það er auðvitað alveg til skammar þegar verkalýðshreyfingin er farin að beita sér með þeim hætti,“ segir Þorsteinn.

„Mér þykir forysta verkalýðshreyfingarinnar ekki axla þá ábyrgð sem að hún í raun og veru þarf við þær kringumstæður sem eru núna. Verkefnið snýst jú um að bjarga störfum en ekki að reyna að knésetja fyrirtæki eins og mér fannst í raun og veru fylgja orðum til dæmis um Icelandair, að það ætti að beita lífeyrissjóðum sérstaklega inn í kjaradeilur til þess hreinlega að setja fyrirtækið í gjaldþrot. Sem að hefði kostað þúsundir manna atvinnu.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×