Bola fimm borgarstjórum til viðbótar úr embætti Atli Ísleifsson skrifar 15. maí 2020 11:43 Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti. AP
Tyrknesk yfirvöld handtóku í morgun fjóra borgarstjóra í borgum þar sem Kúrdar eru í meirihluta í héruðum í austur- og suðausturhluta landsins. Aðgerðirnar eru liður í aðgerðum Tyrklandsstjórnar gegn Lýðræðislega þjóðarflokknum (HDP) sem hún sakar um að tengjast uppreisnarsveitum Kúrda, sem tyrknesk stjórnvöld skilgreina sem hryðjuverkasamtök. AP segir borgarstjórana hafa verið handtekna á heimilum sínum, þeim bolað úr embætti borgarstjóra og skipt út fyrir fulltrúa sem skipaðir eru af stjórnvöldum. Þá á fimmta borgarstjóranum einnig að hafa verið bolað úr embætti en sá á ekki að hafa verið handtekinn. HDP hefur fordæmt aðgerðir Tyrklandsstjórnar „gegn lýðræðislega kjörnum borgarstjórum“ og lýsa þeim sem „valdaráni“. Verið sé að kasta lýðræðinu fyrir roða og sniðganga vilja fólksins. Borgarstjórarnir sem um ræðir voru kjörnir í sveitarstjórnarkosningum í borgunum Igdir, Siirt, Baykan, Kurtalan og Altinova á síðasta ári. HDP segir að ríkisstjórn Tyrklands hafi nú skipað 45 borgarstjóra til bráðabirgða í þeim 65 sveitarfélögum þar sem HDP vann sigur í sveitarstjórnarkosningunum í mars 2019. Alls hafi 21 borgarstjóri verið handtekinn og ákærður fyrir brot gegn hryðjuverkalöggjöfinni í landinu. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa gagnrýnt aðgerðir Tyrklandsstjórnar og telja að verið sé að brjóta á réttindum kjósenda.
Tyrkland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira