Handbolti

Adolf Ingi slær í gegn sem klappstýra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, hefur farið á kostum í innslögum sínum á youtube-síðu Evrópska handknattleikssambandsins. Í þetta skiptið þiggur Adolf góð ráð frá klappstýrunum í Serbíu og dömurnar taka hann í kennslustund, eins og sjá má hér fyrir ofan.

Adolf vakti töluverða athygli í síðustu viku þegar hann afhenti Didier Dinart, varnartrölli Frakka, afmælisköku. Í kjölfarið fóru þeir félagarnir í kappát. Í þetta skiptið stígur Adolf dansspor og óhætt að segja að hann standi sig vel.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Adolf Ingi stígur dansspor í starfi íþróttafréttamanns. Í Íþróttaspeglinum árið 1992 fór Adolf Ingi einnig á kostum.

Myndband af því má sjá með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Adolf Ingi fór í kappát við Didier Dinart

Franska varnartröllið Didier Dinart hélt upp á 35 ára afmæli sitt í gær og fékk af því tilefni stærðarinnar afmælisköku á hóteli franska landsliðsins í Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×