Fjórir lögreglumenn sinna tuttugu þúsund manna samfélagi Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. febrúar 2016 10:07 Lögreglumenn í Eyjafirði, þar með talið Akureyri, hafa miklar áhyggjur af stöðu mála. Vísir/Pjetur
Aðalfundur Lögreglufélags Eyjafjarðar samþykkti á dögunum ályktun þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af þeim skorti á lögreglumönnum, „sem hefur verið viðvarandi í Eyjafirði síðustu ár.“ Félagið sendi frá sér ályktun þar sem greint er frá því að skorið hafi verið niður í mannafla hjá embætti Sýslumannsins á Akureyri á hrunárunum 2008 til 2011. Segir félagið að framlög til embættisins síðan þá hafi ekki skapað neina möguleika á að ráða menn að nýju. Staðan sé því sú í dag að 4 lögreglumenn eru að jafnaði á útkallsvakt á Akureyri og sinna 20.000 manna samfélagi. „Félagið telur að þessi fámenni fjöldi lögreglumanna standist engan samanburð við það sem gengur og gerist annars staðar á landinu. Í sumar verða almennt áfram aðeins 4 lögreglumenn á hverri vakt og því ljóst að vegna sumarleyfa mun sú staða koma upp að tveir fagmenntaðir lögreglumenn verða á vaktinni og tveir afleysingamenn, ómenntaðir. Þetta er algerlega óásættanleg staða. Hún er óásættanleg fyrir þá sem þurfa á þjónustu lögreglunnar að halda og hún er óásættanleg fyrir lögreglumennina út frá öryggissjónarmiðum og álagi,“ segir í ályktun félagsins. Félagið segir sömuleiðis að í ljósi lélegrar nýliðunar hafi meðalaldur lögreglumanna í Eyjafirði farið hækkandi og sé nú kominn í rúm 48 ár. Á sama tíma fjölgi stöðugt verkefnum lögreglunnar á öllum sviðum en ekki hvað síst með gífurlegri fjölgun ferðamanna. „Í ljósi þessa lýsir Lögreglufélag Eyjafjarðar yfir áhyggjum af öryggi og velferð félagsmanna sinna og skorar á ráðamenn að taka nú þegar undir mjög hófstilltar tillögur Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um fjölgun lögreglumanna við embættið sem kynntar voru á síðasta ári,“ eins og það er orðað. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, Halla Bergþóra Björnsdóttir, sendi í fyrra erindi til yfirvalda þess efnis að bæta þyrfti að lágmarki við 5 lögreglumönnum á svæðinu. Telur félagið það vera lágmarksviðbót.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira