Hæstiréttir staðfestir synjun Útlendingastofnunar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 20. desember 2013 10:29
Hæstiréttur staðfesti í vikunni dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem synjaði kröfu nígerísks ríkisborgara um að úrskurður innanríkisráðuneytisins yrði ógiltur og ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki umsókn mannsins um hælis til efnismeðferðar hér á landi yrði felld úr gildi. Maðurinn lýsti því að hann hefði verið ofsóttur af yfirvöldum og öðrum aðilum í heimaríki sínu Nígeríu. Vegna ofsóknanna hafi hann flúið til Ítalíu þar sem hann sótti um hæli árið 2008. Honum hafi síðan verið synjað um hæli þar árið 2011 í framhaldinu ákvað að hann að fara til baka til Nígeríu undir fölsku nafni til þess að forðast afskipti opinberra aðila. Þar hefði fjölskylda hans neitað að taka við honum og hann því snúið sér að baráttu með pólitískum samtökum M.E.N.D., en helsti tilgangur þeirra samtaka sé að berjast gegn arðráni, spillingu og mannréttindabrotum yfirvalda og alþjóðlegra stórfyrirtækja á sviði olíuleitar gegn smærri samfélögum í Nígeríu. Eftir að í ljós kom að leki var frá samtökunum til yfirvalda hafi ekki brugðið á það ráð að flýja frá Nígeríu á nýjan leik en til þess að komast í burtu stal hann pening frá samtökunum. Hann kom svo til Íslands vorið 2012 og óskaði eftir hæli hér á landi en Útlendingastofnun ákvað að umsókn hans um hæli yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og hann skyldi sendur til Ítalíu. Í málinu lá fyrir að Ítalía hafði samþykkt að taka við manninum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Dyflinnarreglugerðin er samkomulag milli Schengenríkja og heimilar stjórnvöldum að senda flóttamann aftur til þess Schengenríkis sem hann kom fyrst til og Ísland og Ítalía eru bæði aðilar að Schengen. Í dómi Hæstaréttar sagði meðal annars að líta yrði svo á að hælisumsókn mannsins á Ítalíu og umsókn hans um hæli hér á landi væru eitt og sama málið. Var talið ljóst að fyrir hendi hefðu verið raunhæf úrræði fyrir O að leita réttar síns við meðferð málsins á Ítalíu samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu og að ekki hefði verið sýnt fram á að ítölsk yfirvöld myndu ekki veita manninum þá vernd sem áskilin væri í skuldbindingum þeirra á sviði mannréttinda.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira