Geir og Erlingur stýrðu báðir sínum liðum til sigurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2013 21:36 Geir Sveinsson, þjálfari HC Bregenz, tók frábært leikhlé sem breytti leiknum. Mynd/NordicPhotos/Getty
Geir Sveinsson, þjálfari HC Bregenz, og Erlingur Birgir Richardsson, þjálfari SG Westwien, stýrðu báðir sínum liðum til sigurs á útivelli í kvöld í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta. Liðin eru með jafnmörg stig í 3. og 4. sæti deildarinnar fjórum stigum á eftir toppliði HC Hard. Sigrarnir í kvöld komu á móti liðum sem voru neðar í töflunni. Geir Sveinsson sá sína stráka vinna þriðja deildarleikinn í röð þegar liðið vann 30-27 útisigur á ULZ Schwaz en Bregenz-liðið hefndi um leið fyrir tap í bikarleik liðanna fyrir aðeins þremur dögum. Það stefndi reyndar í annan sigur Schwaz sem var 19-17 yfir þegar 20 mínútur voru eftir. Geir tók þá leikhlé og kveikti i Bregenz-liðinu sem vann lokakafla leiksins 13-8. Erlingur Birgir Richardsson stýrði SG Westwien til 38-36 sigurs á Union Leoben á útivelli en staðan í hálfleik var 23-19 fyrir Westwien. Westwien er búið að vinna sex af síðustu átta deildarleikjum sínum. Staðan var 36-36 þegar þrjár mínútur voru eftir en austurríski landsliðsmaðurinn Konrad Wilczynski skoraði tvö síðustu mörk leiksins og tryggði sínum mönnum sigurinn.
Handbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira