Kenneth Máni hringdi í Útvarp Sögu eftir áskorun frá Loga Kjartan Atli Kjartansson skrifar 5. desember 2014 12:16
Símtal persónunnar Kenneths Mána í símatíma á Útvarpi Sögu fer nú eins og eldur um sinu um netheima. Þar ræðir leikarinn Björn Thors við Pétur Gunnlaugsson, þáttarstjórnanda á Útvarpi Sögu, um samfélagið á gagnrýninn hátt. Símtalið, sem má hlusta á hér að ofan, var áskorun á leikarann Björn Thors frá Loga Bergmann, en Björn er gestur Loga í þætti hans í kvöld. „Okkur langaði að leggja fyrir hann próf, hversu góður hann væri sem Kenneth Máni. Og það er auðvitað engin betri leið til þess en að hringja í Útvarp Sögu,“ útskýrir Logi og heldur áfram: „Við vildum athuga hvað hann gæti haldið Pétri Gunnlaugssyni lengi á línunni. Hann nær að teygja sig í átta mínútur, sem er ansi vel gert. Og það er ekkert samhengi í því sem hann er að segja, ekkert samhengi.“ Logi hlær þegar hann leggur áherslu á að samhengisleysið í orðum Kenneths Mána og útskýrir nánar: „Hann talar meðal annars um að fara í fangelsi og borga sína skuld, en þurfa samt að borga skatta þegar hann kemur út. Þetta er auðvitað stórkostleg lína. Hann spurði líka: „Hvar er skjaldborgin?“ og Pétur var alveg með á því.“ Það vakti líka athygli að bjallan fræga, sem notuð er til að láta fólk vita þegar tími þess er búinn í símatímanum, glumdi aldrei. „Já, sko, ég held að hann hafi bara aðeins náð honum með talinu um skjaldborgina. Ég held að Pétur hafi gaman af því að fara yfir hvar skjaldborgin sé. Ég held að honum hugnist það umræðuefni svolítið.“ Þáttur Loga verður á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19:45 í kvöld.
Mest lesið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Lífið Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Tónlist Fleiri fréttir Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Sjá meira