Fer í heilunarástand er hún málar myndir 5. desember 2014 12:00 Leist ekkert á blikuna fyrst Edda hefur málað myndir í fjögur ár. Mynd/Olga Helena „
Fólk stendur yfirleitt við trönurnar þegar það er að mála módel, en ég sit í stólnum og þá kemur annað sjónarhorn á módelin,“ segir Edda Heiðrún Backman sem opnaði málverkasýningu í Gallerýi Bakaríi síðastliðinn laugardag. Á sýningunni eru myndir sem Edda teiknaði eftir lifandi módelum. „Ég var með blaðið á gólfinu og málaði myndirnar með löngum bambus. Það var mjög gaman að reyna við þetta enda ofsalega góð teikniæfing,“ útskýrir Edda, en hún notar munninn þegar hún málar myndirnar. Ásamt því að halda sýninguna gefur Edda einnig út bókina Úr fórum mínum, en þar má sjá yfir sjötíu myndir sem hún hefur málað síðan 2010. „Þetta er kaflaskipt bók, hún skiptist í olíumálverk, vatnslitaverk, portrettmyndir, módelteikningar og drauma og minningar. Stundum dreymir mig einhver form og þá verð ég að drífa mig að mála þau, annars bara gleymi ég þeim,“ segir Edda. Bókin kemur út í takmörkuðu upplagi og gefur Edda hana sjálf út. Aðspurð hvort listin gefi henni ekki mikið játar hún því. „Í þessari athöfn, að mála þá fer maður í eins konar heilunarástand og stundum er eins og hugmyndirnar hrynji niður. Þetta er eiginlega eins og íhugun fyrir mig. Ég á það til að detta alveg út þegar ég er að mála og heyri ekki einu sinni þegar er kallað á mig,“ segir hún og hlær. Að mála með munninum er mikil þolinmæðisvinna og segir Edda að sjúkdómurinn hafi kennt henni þolinmæði. „Mér leist ekkert á blikuna fyrst, en þetta er bara mikil þolinmæðisvinna. Sagt er að þolinmæði sé sú kennd sem sýnir okkur að við séum óþolinmóð. Ef þér finnst ekkert vera að ganga upp, þá er eitthvað að hjá þér því allt hefur sinn tíma,“ bætir hún við. adda@frettabladid.is
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Fleiri fréttir Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Sjá meira