Óbreyttir stýrivextir hjá Seðlabankanum 14. febrúar 2008 09:00
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 13,75 prósent. Þetta er í samræmi við spár greiningardeilda Glitnis og Landsbankans. Kaupþing hafði hins vegar búist við stýrivaxtalækkun. Kaupþingsmenn lýstu nýverið þeirri skoðun sinni að lækkuðu vextir ekki hratt mætti hér gera ráð fyrir mjög harðri lendingu í efnahagslífinu. Haft var eftir Ásgeiri Jónssyni, forstöðumanni greiningardeildar Kaupþings, í Markaðnum í gær að vextir hér væru mjög háir og álíti deildin að verulega áhættusamt sé að halda þeim mjög háum með því markmiði að lækka þá mjög hratt síðar. Hann reiknað því með allt að 50 punkta lækkun í dag. Glitnir taldi á móti að rökin fyrir óbreyttu vaxtastigi væru þau að Seðlabankinn myndi horfa til óvissuþátta, svo sem niðurstöðu kjarasamninga og spennu á vinnumarkaði. Myndi bankinn því ekki lækka vextina fyrr en eftir tvo mánuði og þá um 25 punkta. Landsbankinn telur hins vegar að Seðlabankinn fylgist með þróun mála hjá Evrópska seðlabankanum. Lækki stýrivextir þar geti það haft áhrif hér líkt og fram kom í Markaðnum í gær. Þar var jafnframt haft eftir Eddu Rós Karlsdóttur, forstöðumanni greiningardeildar Landsbankans, að hún telji líklegt að Seðlabanki Íslands lækki stýrivexti í næsta mánuði utan skipulagðra vaxtaákvörðunardaga. Í frétt sem Seðlabankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt. Talsmenn atvinnulífsins hafa að undanförnu þrýst á lækkun í tengslum við gerð nýrra kjarasamnings.Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 10. apríl.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira