Sport

Jón Arnar keppir í Tallinn

Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr FH, ætlar að taka þátt í hinu árlega boðsmóti Erkis Nools sem fram fer í Tallinn í Eistlandi um helgina. Þetta er í áttunda skipti sem boðsmót Erkis Nools er haldið og er Jón Arnar eini keppandinn sem verið hefur með frá upphafi. Í tvígang hefur hann hreppt annað sætið en hann varð í fjórða sæti í fyrra. Jón Arnar, sem hefur hefur dregið verulega úr æfingum eftir Ólympíuleikanna á síðasta ári, býst ekki við miklum árangri að þessu sinni. Á heimasíðu mótsins er könnun á því hver sé líklegastur til þess að vinna mótið og þar er Jón Arnar í 2. sæti með 27 prósent atkvæða en Roman Sebrle er efstur með 51 prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×