Viðskipti innlent

Fjárhagsstaða Landsvirkjunar batnar

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Rekstrartekjur Landsvirkjunar námu 436,2 milljónum USD (55,4 ma.kr.) sem er 15,5% aukning frá árinu áður samkvæmt ársreikningi Landsvirkjunar.

Þar kemur fram að EBITDA nam 345,2 milljónum USD (43,8 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 79,1% af tekjum, en var 78,9% árið 2010. Þá var handbært fé frá rekstri 267,2 milljónum USD (33,9 ma.kr.) sem er 16,4% aukning frá árinu 2010.

Hagnaður eftir skatta nam 26,5 milljónum USD (3,4 ma.kr.), en var 72,9 milljónir USD árið áður. Lausafjárstaða Landsvirkjunar er sterk og hafði fyrirtækið í árslok aðgang að 645,7 milljónum USD (82 ma.kr.). Sterk lausafjárstaða tryggir getu fyrirtækisins til að standa straum af afborgunum lána á næstu árum.

Nettó skuldir lækkuðu á árinu um 171 milljón USD (21,7 ma.kr.) og voru í árslok 2.503 milljónir USD (317,9 ma.kr) Stjórn félagsins mun á aðalfundi gera tillögu um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,8 milljarðar króna (14,2 milljónir USD) fyrir árið 2011.

„Fjárhagsstaða fyrirtækisins á árinu 2011 batnaði nokkuð frá fyrra ári einkum vegna tekjuaukningar, sem rekja má til breytinga á samningum um raforkuverð og hækkandi álverðs," segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og bætir við:

„Lækkun skulda og bætt sjóðstreymi á árinu valda því að lykilmælikvarðar um fjárhagslegan styrk fyrirtækisins þróast í rétta átt þótt enn vanti upp á að fyrirtækið standist samanburð við erlend raforkufyrirtæki og kröfur erlendra matsfyrirtækja. Mikilvægt er því að bæta þessar kennitölur enn frekar á næstu árum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×