Þórey Rósa: Nú er bara komið að því að spila góðar 60 mínútur Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 7. desember 2012 14:00 Þórey Rósa Stefánsdóttir fær hér meðferð frá Elínu Harðardóttur sjúkraþjálfara íslenska liðsins. Mynd/Stefán
Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur skoraði tvö af þremur hraðaupphlaupsmörkum Íslands á Evrópumótinu samkvæmt tölfræði mótshaldara í Serbíu en íslenska liðið þarf að fá fleiri auðveld mörk ætli stelpurnar að vinna Rússa í kvöld og komast í milliriðilinn. „Það hefur bara gengið vel að safna kröftum. Við fengum góðan frídag í dag og nýttum hann vel. Sumar fóru niður í bæ en aðrar höfðu það gott og horfðu á þætti upp í rúmi. Svo fórum við og fengum okkur pizzu sem var rosalega góð. Við höfum bara reynt að safna kröftum fyrir morgundaginn," sagði Þórey Rósa Stefánsdóttir. „Mér lýst bara vel á þennan leik. Það vær ógeðslega flott að taka Rússana og skilja þær bara eftir í þessum riðli. við ætlum að komast þessa margumtöluðu íslensku fjallabaksleið," sagði Þórey. „Við eigum harma að hefna síðan á HM í Brasilíu. Við spiluðum góðar 40 mínútur þar og nú er bara komið að því að spila góðar 60 mínútur. Ef það tekst þá tel ég að við eigum fulla möguleika í þær," sagði Þórey en af hverju hafa hraðaupphlaupsmörkin ekki verið að skila sér í mótinu til þessa. „Sumar sendingarnar hafa ekki alveg ratað á rétta staði, við höfum ekki verið alveg nógu fljótar að rekja boltann og við getum kannski verið enn fljótari fram. Þetta kemur vonandi á morgun, mér finnst Rússarnir vera lengi til baka og við ættum að geta nýtt okkur það," sagði Þórey.
Mest lesið Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira